11.03.1947
Neðri deild: 90. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (1830)
191. mál, einkasala á tóbaki
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég sá mér ekki fært að verða samferða nm. mínum í fjhn. um að flytja þetta frv., á meðan stefna ríkisstj. er yfirleitt ekki skýrari en nú er. Og á meðan ekki er séð, hverjar eða hvaða framkvæmdir ríkisstj., hefur í huga, sjáum við okkur ekki fært að vera með tekjuöflunarleið hennar. Hins vegar mun ég ekki stofna til stórumr. til þess að draga þetta mál. Ég skil vel, að hæstv. fjmrh. vill fá þetta mál fljótt í gegnum þingið. Við munum þess vegna greiða atkv. á móti þessari hækkun.