22.11.1946
Neðri deild: 22. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (184)
40. mál, heimilisfang
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. Hv. 2. þm. Eyf. (GÞ), sem var kjörinn frsm. þessa máls, hefur tjáð mér, að hann geti ekki mætt hér í upphafi fundar, og bað hann mig fylgja því úr hlaði með nokkrum orðum.
Hér er um að ræða stjfrv., þar sem lagt er til, að fulltrúum Íslands erlendis í íslenzkri þjónustu þar við sendiráð eða á ræðismannsskrifstofum sé lögfestur réttur til að hafa heimilisfang sitt á Íslandi þrátt fyrir vist sína erlendis. Hér er ekki um annað að ræða, en að lögfesta þá reglu, sem víðtekin er í alþjóðarétti, að þeir fulltrúar ríkis, sem erlendis dvelja í þjónustu þess við sendiráð og ræðismannsskrifstofur, skuli halda búsetu sinni og heimilisfangi í heimalandinu. Það er talið, að sendiráð hvers ríkis sé hluti af jörð þess ríkis, þótt erlendis sé. Okkur í allshn. virðist sjálfsagt að fallist á þetta og skipa þessu í lagaform, þeirri reglu, sem annars er fylgt og framkvæmd er alls staðar, jafnvel þótt hún sé ekki lögbundin. — Að öðru leyti er ekki ástæða til að fjölyrða um þetta mál, en ég vænti þess, að það megi áfram ganga í þessari hv. d.