11.03.1947
Efri deild: 89. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1401 í B-deild Alþingistíðinda. (1841)
191. mál, einkasala á tóbaki
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :
Ég sé enga ástæðu til þess, að málið fari í n., því að n. gerir ekki annað en vera annaðhvort með hækkuninni eða á móti. Og það geta hv. nm. gert nú við þessa atkvgr.
En hvað það snertir, hver stefna verði í fjármálum ríkisins, þá verð ég að segja það, að það ætti ekki að vera og er ekkert vafaatriði, að ríkiskassann vantar stórkostlega auknar tekjur. Og mér þykir það gegna furðu, að sá hv. þm., sem hér talaði, skuli leggjast á móti því, að hækkuð sé í verði munaðarvara, þegar það er vitað, að hans eigin flokksmenn hafa lagt svo mjög gegn öllum niðurskurði á útgjöldum í fjvn. Það er ekki ástæða nú til að ræða þá stefnu, sem taka á upp í þessu efni. En hitt liggur í augum uppi, að sú stefna getur ekki staðizt að standa á móti öllum niðurskurði á gjöldum ríkisins og einnig á móti öllum tekjuöflunarleiðum ríkissjóði til handa. Að öðru leyti skal ég ekki orðlengja þetta mál nú. Ég legg á móti því, að málið fari til n. Hér á eftir verður áríðandi fundur í hv. utanrmn., og af tekniskum ástæðum tel ég þetta frv. þurfa að fá afgreiðslu strax í dag. Það er ekki hægt að stöðva sölu á tóbaki nema stuttan tíma, en meðan þetta er á döfinni, dugar ekki að hafa tóbakseinkasöluna opna.