13.02.1947
Efri deild: 72. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)

111. mál, Háskóli Íslands

Frsm. (Hannibal Valdimarsson) :

Ég skal játa, að n. hefur ekki gert aths. við þetta ákvæði í 1. gr., og er það þá fyrst og fremst sökum þess, að frv. hefur meðmæli allra aðila, sem um það hafa fjallað á fyrra stigi þess, sem sé bæði heimspekideildar Háskólans og háskólarektors, og einnig hefur það verið samþ. af háskólaráði. Má ef til vill vera, að þessir aðilar hafi ekki lagt sem skyldi áherzlu á þetta atriði, eftirlit með prófum og hvernig ætti að dæma þau, og þarna þurfi að reisa rammari skorður við.

Ég skal játa það, að það er nokkuð með einkennilegum hætti, að prófdómarar skuli eiga að vera við kennarapróf í íslenzkum fræðum, en ekki við það próf, sem telst gráðu ofar, þar sem við bætast kröfur um vísindalega þekkingu nemenda — þar skuli engir prófdómarar eiga að vera aðrir en kennarar í íslenzkum fræðum við háskólann. Vafalaust hljóta þó að vera til menn í landinu, sem hafi slíkan lærdóm í íslenzkum fræðum, utan þeirra, sem við háskólann starfa í þessari fræðigrein, að hægt væri að fá prófdómara utan stofnunarinnar við þetta próf. Ég held, að það sé ekki nein andstaða gegn því í menntmn,, að málið gangi þangað aftur til athugunar út af þessu atriði.