25.02.1947
Efri deild: 80. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1405 í B-deild Alþingistíðinda. (1872)
111. mál, Háskóli Íslands
Frsm. (Hannibal Valdimarsson).:
Ég veit ekki, af hverju hæstv. dómsmrh. hefur ráðið það af orðum mínum, að kennarar háskólans í íslenzkum fræðum væru haldnir embættishroka. Það var síður en svo, að það kæmi fram hjá próf. Einari Ól., þegar ég ræddi við hann um þetta mál. Það, sem hann fór fram á, var aðeins það, að ef Alþ. óskaði eftir að breyta þessu frv. eitthvað, t. d. að sérstök dómnefnd dæmdi um úrlausnir við meistarapróf, sem hann fyrir sitt leyti kvaðst vel geta sætt sig við, þá fengi heimspekideildin að athuga það nánar, áður en slíkar breyt. væru lögfestar. Úr því að hæstv. dómsmrh. telur þessa breyt. æskilega og er að sjálfsögðu mjög kunnugur þessu máli, og sennilega miklu kunnugri því en n., þá er til þess opin leið.