18.12.1946
Neðri deild: 40. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í B-deild Alþingistíðinda. (1885)
67. mál, þingsköp Alþingis
Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls gerði ég nokkra grein fyrir því frv., sem hér liggur fyrir frá allshn. Allshn. hefur orðið sammála um að mæla með því, að frv. þetta nái fram að ganga.
Ég mun ekki þreyta hv. þd. með því að endurtaka nein af þeim rökum eða ástæðum, sem ég færði fram við 1. umr. þessa máls, þegar frv. var fylgt úr hlaði. Vil ég þó aðeins segja það, að mér finnst það koma skýrar og skýrar í ljós við meðferð fsp. hér á hæstv. Alþ., að nauðsyn beri til að taka þar um breytta háttu. Ég vildi mega vænta þess, að hv. þd. gæti fallizt á þá hugmynd að breyta nú svo til, sem frv. gerir ráð fyrir, og að framkvæmd þeirra spurningatíma gæti orðið til þess að koma á betri afgreiðslu varðandi spurningar, sem einstakir þm. vilja bera fram við ráðh., sem oft vill verða og æskilegt er jafnvel, að geti orðið sem oftast, þegar þm. telja sig skorta upplýsingar um þau mál, sem þeim er skylt að fylgjast með og fjalla um.
Ég vildi aðeins skjóta því fram í sambandi við þetta mál, að í raun og veru hefði verið mjög æskilegt, ef þess hefði verið kostur, eftir að þetta skipulag væri komið á, að reynt væri að taka upp prentun samstundis á þessum þætti þingtíðindanna. Ég ætla, að þetta yrði ekki neinn sérstaklega stór eða fyrirferðarmikill þáttur í þingtíðindunum. En ég ætla þó, að einmitt þessir spurningatímar væru um málefni, sem fólkið í landinu gjarnan vildi fá tækifæri til að fylgjast sem allra bezt með, um hvað ráðh. svara fsp. og hvað þm. hafa fram að bera í því sambandi og hvaða aths. að gera. En þetta eru allt atriði, sem mætti taka til athugunar síðar meir. En ég vildi skjóta þessari hugmynd fram fyrir hv. þd. til nánari umhugsunar.
Að svo mæltu vil ég fyrir hönd allshn. mæla með því, að þetta frv. verði samþ.