10.10.1946
Efri deild: 1. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (19)

Sætaskipun

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég víl ekki blanda mér inn í þær deilur, sem hér hafa átt sér stað, um það, hvort hér sé um löglega eða ekki löglega aðferð að ræða. En þess minnist ég á undanförnum árum í þessari hv. d., að forseti hefur leitað afbrigða fyrir því frá þingsköpum að falla frá því að hluta um sæti. og má heita, að allir þm. hafi verið ánægðir með að skipta ekki um sæti. Nú hefur verið leitað slíkra afbrigða, að fallið skyldi frá þessari reglu, sem þingsköp mæla fyrir, og þar sem nú hefur verið leitað þeirra og þau samþykkt, enda verið sú venja hér í hv. deild ... (PZ: það er ekki rétt). Jú, það er rétt. Ég hef verið hér í hv. d. á fleiri þingum en hv. I. þm. N-M.