26.11.1946
Efri deild: 20. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)

85. mál, ljósmæðralög

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þetta mál með langri ræðu. Ég geri ekki ágreining út af launahækkuninni út af fyrir sig, en vil benda á, að þar sem þessi breyt. er eingöngu um laun, þá tel ég rétt, að frv. fari til fjhn., og mun gera till. um það.

Ég vil í sambandi við breyt. á 8. og 9. gr. leyfa mér að taka fram, að eftir því sem ákveðið er í 3. gr. frv., þá er gert ráð fyrir, að 2. málsgr., 8. gr. falli niður, sem sé síðan tekin upp í 9. gr. Í sambandi við það vil ég mega benda á, að það væri rétt að bera þetta saman við tryggingalöggjöfina. Þar er ákveðið, að þegar heilsugæzlan verður lögtekin, þá skuli einmitt alveg sérstaklega láta í té hjúkrun í sambandi við þessi mál, og ætlazt til, að starf yfirsetukvenna verði enn víðtækara en gert er ráð fyrir í þessum l. Það var mjög rætt um þetta, þegar almannatryggingarnar voru í þessari sömu n., og einnig gert ráð fyrir, að þær fái sérstakan styrk, sem ekki var fyrir hendi, þegar þessi gr. hefur verið samin, 1933. Það er gert ráð fyrir, að þær fái sérstakan fæðingarstyrk og kostnaðurinn sé að nokkru leyti borinn af tryggingunum.

Að öðru leyti skal ég ekki gera frv. sjálft að neinu umræðuefni, en legg til, að því verði vísað til fjhn., og kemur þá að sjálfsögðu til greina hjá n. að athuga, hvort fyrri málsgr. 9. gr. heyri ekki til væntanlegri löggjöf um skyldur og réttindi embættismanna, sem hefur verið lofað, að lögð yrði fyrir þingið fyrir löngu síðan, en er ekki komin enn, en kann vel að vera, að sé svo vel undirbúin, að hægt sé að sjá hjá þeirri n., sem með það hefur að gera, hvort þetta er tekið upp í þann lagabálk.