12.12.1946
Efri deild: 32. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (1913)
85. mál, ljósmæðralög
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég hef engar verulegar aths. að gera við þetta mál. Hins vegar segir svo í 3. málsgr. 1. gr. frv., að launin skuli hækka eftir 5 ár um 85 kr. og eftir önnur 5 ár um 85 kr. Mig minnir, að lengsti launahækkunartími launal. sé 6 ár, og finnst mér því óviðkunnanlegt, þegar um lágt launaða starfsmenn er að ræða eins og ljósmæður, að hækka laun þeirra á lengri tíma en annarra embættismanna. Tel ég því rétt að gera þarna þá breyt., að í staðinn fyrir 5 ár komi ekki hærra en 3 ár, og fengju ljósmæður þá tvisvar 85 kr. launahækkun á ekki lengri tíma en 6 árum, í staðinn fyrir á 10 árum, eins og nú er gert ráð fyrir í frv.