05.03.1947
Efri deild: 85. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (1937)

94. mál, vernd barna og ungmenna

Frsm. (Hannibal Valdimarsson) :

Herra forseti. Þetta frv. um vernd barna og ungmenna var fyrst flutt hér í ársbyrjun 1943. Hafði þáverandi ríkisstj. fengið þá Gissur Bergsteinsson hæstaréttardómara, Vilmund Jónsson landlækni og dr. Símon Jóh. Ágústsson uppeldisfræðing til að semja slíkt frv., og nú er það flutt hér í fjórða sinn. Síðan hafa margir aðilar um það fjallað, og frv. hefur við þá athugun tekið ýmsum breyt. Ein stórfelldasta breyt. er sú, að heill frumvarpskafli, um ungmennadóm, hefur alveg verið felldur niður. Þá hafa ýmis ný ákvæði komið inn í frv., síðan það var fyrst flutt, eða öðrum atriðum hefur verið breytt, t. d. ákvæði 36. gr., þar sem ríkinu er gert að skyldu að stofna og starfrækja athugunarstöð barna og ungmenna, sem eru andlega miður sín. Áður var ákvæði um það í frv., að Reykjavíkurbæ væri skylt á sinn kostnað að sjá barnaverndarnefnd fyrir slíkri stöð, og um það atriði voru hér miklar deilur. Hér er því um verulega breyt. að ræða: Þá er nú í 36. gr. sett ákvæði um, að ríkið sé skyldugt til að stofna a. m. k. tvö hæli (annað fyrir pilta og hitt fyrir stúlkur) fyrir börn og ungmenni, sem framið hafa afbrot eða eru á annan hátt á glapstigum, en áður var aðeins heimild um þetta í frv. Samkv. þessari grein er ríkisstj. skylt að setja á stofn og starfrækja slík hæli, þar sem börn og ungmenni eru vistuð til langframa. Ég held nú, að þetta séu helztu breyt., sem orðið hafa á frv., síðan það var hér til meðferðar.

Frá árinu 1932 hafa verið hér í gildi l. um barnavernd. Fram að þeim tíma var ekki til nein heildarlöggjöf um þessi mál, en á við og dreif í l. voru ýmis ákvæði, sem vörðuðu forráð yfir börnum og meðferð þeirra, sbr. t. d. tilskipun um húsagann á Íslandi frá 1746, l. um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna frá 1921 og lög um afstöðu foreldra til skilgetinna barna frá sama ári, l. um stofnun og slit hjúskapar, sem einnig voru frá 1921. Enn fremur mætti nefna l. um skilorðsbundna hegningardóma og hegningu barna og ungmenna, fátækralög, l. um iðnaðarnám, hjúalög, sjómannalög, l. um verzlunarnám o. fl.

Það verður ekki deilt um aukna nauðsyn slíkrar löggjafar, sem hér um ræðir, þegar litið er til þjóðfélagsþróunarinnar hér á seinni tímum, hinna miklu flutninga fólksins úr strjálbýlinu í þéttbýlið og hins mikla vanda í uppeldinu, sem af þeirri þróun stafar. Með þetta í huga hefur þetta frv. verið samið og á því síðan gerðar breyt.

Störf barnaverndarnefnda nú í hálfan annan áratug hafa verið mjög víðtæk, eða hefðu þurft að vera það a. m. k., því að eflaust hefur sums staðar skort á, að þau störf væru innt af hendi eins og þurft hefði, þó að víða hafi verið vel unnið. Störf barnaverndarnefndarinnar í Reykjavík hafa að sjálfsögðu verið langumsvifamest. Sú n. hefur nú opna skrifstofu. Hún hefur ráðið hjúkrunarkonu og sérfróðan mann til að rannsaka börn og leiðbeina foreldrum um uppeldi og fulltrúa til að annast dagleg störf í sínu umboði. Þeir aðilar, sem hafa haft þessi mál til meðferðar síðan 1932, störfuðu hvergi nærri nógu ýtarlega, eins og áður er drepið á, og af fleiri sökum var orðin full ástæða til að samhæfa þessi mál, er frv. þetta var samið.

Það er leitazt við að gera í þessum lagabálki, og er vaxandi þörf á barnaverndarstörfum fyrsta og aðalástæðan til þessa frv. Í frv. þessu eru mörg ný ákvæði, sem ekki hafa verið í eldri l., í öðru lagi er þar stuðzt við reynslu af barnaverndarstörfum undanfarinna ára og í þriðja lagi hefur verið stuðzt við erlend l. um sama efni, eftir því sem n. hefur fengið upplýsingar um. — Ég er þeirrar skoðunar, og ég hygg, að aðrir hv. nm. séu einnig sannfærðir um það, að þetta sé mikils verð lagasetning, ef viðunandi framkvæmd fæst á löggjöfinni. En þar sem frv. hlýtur að vera hv. þm. flestum gagnkunnugt af ástæðum, sem ég áður hef nefnt, þykir mér varla ástæða til að rekja efni þess grein fyrir grein, heldur aðeins geta um efni þess í stórum dráttum.

Frv. er í sex köflum, og er aðalinnihald þeirra, sem hér segir :

II. kafli er um barnaverndarnefndir. Barnaverndarnefndir eiga að vera í hverjum kaupstað landsins, en utan kaupstaðanna eiga skólanefndir að vinna störf barnaverndarnefnda. Þeir menn, sem skipaðir verða eða kosnir í barnaverndarnefndir, eiga að njóta réttinda opinberra starfsmanna og njóta þá þeirrar verndar, sem þeim mönnum er tryggð. Þeir, sem í þessum n. eru, eru bundnir þagnarskyldu um allt, sem þeir verða áskynja í sambandi við starfið, og er lögð sú skylda þeim á herðar að líta á allt, sem snertir einkamál manna og heimilisháttu, sem algert leyndarmál. Barnaverndarnefndir eiga að hafa eftirlit með uppeldi og aðbúnaði barna og ungmenna allt til 16 ára aldurs og í einstökum tilfellum upp að 18 ára aldri.

III. kafli frv. fjallar um barnaverndarráð. Ráðh. á að skipa barnaverndarráð til fjögurra ára í senn. Það á að vera skipað þremur mönnum, sem eiga heima í Reykjavík. Skal einn þeirra manna vera skipaður samkv. tillögu Prestafélags Íslands, annar samkv. tillögu Sambands íslenzkra barnakennara, en hinn þriðja skipar ráðh. án tilnefningar, og skal sá vera form. ráðsins. Á sama hátt skulu skipaðir jafnmargir varamenn í þetta ráð. Barnaverndarráð hefur allt landið sem sitt starfssvið.

IV. kafli frv. er um störf og starfsháttu barnaverndarnefnda, og er það langsamlega lengsti kafli frv. og mjög miklu ýtarlegri en gildandi l. um barnaverndarnefndir.

V. kafli er svo um störf og starfsháttu barnaverndarráðs, sömuleiðis allýtar legur. Í þessum kafla og IV. kafla er allt meginefni frv.

N. hefur athugað þetta frv. allgaumgæfilega. Við þá athugun veitti hún því m. a. athygli sérstaklega, að við einstakar gr. IV. kaflans, um störf og starfsháttu barnaverndarnefndar, eru sérstök og tilgreind refsiákvæði við nokkrar einstakar gr. Við nm. bárum þessi refsiákvæði saman við ákvæði hegningarl. og vildu þessi tvenn ákvæði ekki alltaf vera nákvæmlega samhljóða. Út af þessu og ýmsu öðru álitum við réttast að kalla á fund n. Gissur Bergsteinsson hæstaréttardómara, einn af höfundum frv. upphaflega, til þess að fræðast af honum einmitt um viðhorf hans til ýmissa lögfræðilegra atriða málsins. Gissur Bergsteinsson mætti svo hjá n., og n. ræddi við hann um þessi atriði, og tók hann fram m. a. um þessi vandkvæði, sem í frv. eru, að ástæðan til þess, að það væru ekki alls staðar nákvæmlega sömu refsiákvæði í þessu frv. eins og í hegningarl. fyrir sama brot, væri sú, að í gr. þessa frv. væru eitthvað öðruvísi tilvik en um. getur í hegningarl. En hann sagði, að þar sem um væri að ræða sams konar brot, þá yrðu þau ákvæðin í þessum tvennum l. látin ráða, sem ákvæðu þyngri refsingu. — Eftir viðræðurnar við Gissur Bergsteinsson fannst n. ekki ástæða til. að hrófla við þessum ákvæðum frv. og gerir n. heldur ekki neinar till. um það. Öll n. var því sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ., eins og það liggur fyrir. Þó gat einn nm., hv. þm. Barð., þess, að hann áskildi sér rétt til þess að bera fram brtt. við frv. eða fylgja brtt. við það, sem fram kynnu að koma, og er þess getið 3 nál. Hefur nú hv. þm. Barð. borið fram þessar brtt. á þskj. nr. 475. Ég tel, að þær séu flestar um smávægileg atriði og a. m. k. þess eðlis, að þær raski að engu leyti megintilgangi eða formi þessara l.

Ég teldi það mjög miður farið — og mæli það fyrir hönd n. í heild —, ef þingið viki þessu máli frá sér alveg í fjórða sinn. Ég teldi það ósæmilegt, því að það er fullkomin þörf fyrir þessa löggjöf, og um það verður ekki deilt, að efni það, sem hún fjallar um, er mikils virði fyrir þjóðfélagið, og nauðsynlegt er, að til sé lagasetning um það, sem mjög væri vandað til. Það virðist einnig svo, að þetta frv. sé búið að ganga í gegnum svo margfaldan hreinsunareld, að ætla megi, að til þess sé nú vel vandað, þó að reynslan skeri úr því betur síðar.

Fyrir hönd n. legg ég því til, að þetta frv. verði samþ.