20.03.1947
Neðri deild: 100. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)

94. mál, vernd barna og ungmenna

Frsm. (Katrín Thoroddsen) :

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. flytur brtt. við þetta frv. á þskj. 547, en frv. er nú hingað komið aftur eftir afgreiðslu í hv. Ed., en þar var því vikið nokkuð við, og því tók n. það aftur til athugunar og flytur við það þrjár brtt., sem allar miða að því að færa það nær því formi, sem Nd. afgr. það í. Hv. Ed. hefur jafnan verið frv. þessu ósköp erfið. Það hefur ýmist dagað þar uppi eða verið fellt, en þegar það nú loksins nær samþykki þeirrar d., er það með ýmsum breytingum, innskotum og úrfellingum, sem ekki eru góðar að dómi heilbr.- og félmn. Nd. Skylt er að geta þess, að sumar breyt. hv. Ed. eru réttmætar, t. d. niðurfelling óþarfa orðs í 35. gr., sem var til mállýta, og árétting við 24. og 38. gr. á því, að sveitarstjórnir greiði aðeins þann kostnað af framfærslu barna, sem almannatryggingunum ber ekki að inna af hendi, og hefur n. ekki nema gott eitt um það að segja. Þá fellst n. á niðurfellinguna úr 48. gr. og telur það til bóta, að síðari liður annarrar málsgr, þeirrar gr. er felldur niður, um það, að refsimál skuli því aðeins höfða, að barnaverndarnefnd eða barnaverndarráð krefjist þess. N. telur ekki eðlilegt né ákjósanlegt að fá þeim aðilum það vald, þar eð allar líkur eru til, að álits og umsagnar þeirrar verði leitað í slíkum tilfellum.

Þá hefur hv. Ed. skotið inn þeirri takmörkun á ákvæðum 36. og 37. gr., um að ríkisstj. sé skylt að stofna og starfrækja athugunarstöð og hæli fyrir börn, sem eru andlega eða líkamlega miður sín, að um þetta skuli fara eftir því, sem fé sé veitt til á fjárlögum. Enda þótt n. sé ljóst, að mikið er undir því komið, að þessi stofnun verði sem fyrst reist, telur hún ekki vænlegt, eins og nú standa sakir, að flytja brtt. um að fella þetta innskot hv. Ed. niður. Hins vegar hefur n. orðið ásátt um að bera fram þáltill., er miði að því að fela ríkisstj. að undirbúa þetta mál og ætla til þess fé á næstu fjárl., svo að framkvæmdir þurfi ekki að dragast lengur en fram á næsta ár.

En því miður hefur hv. Ed. ekki látið sér nægja þær breyt., sem ég hef nú rakið, heldur hefur hún gert þrjár varhugaverðar breyt. á 16., 23. og 33. gr., sem heilbr.- og félmn. hefur orðið sammála um að leggja til, að allar verði burtu felldar. 16. gr. fjallar um, að barnaverndarnefnd eða fulltrúum hennar sé heimilt að fara á heimili og hæli til rannsóknar á högum barns og ungmennis, en hv. Ed. bindur þessa heimild því skilyrði, að tilefni verði að gefast til slíkrar rannsóknar að dómi barnaverndarráðs. Þetta ákvæði lýsir miklum misskilningi og vanmati á getu og hæfni þeirra manna, sem í þeim n. eru, og það lýsir litlum skilningi á því, hvaða sjónarmið eru lögð til grundvallar, þegar menn eru valdir í barnaverndarnefndir. N. telur þetta óréttmætt og til hindrunar framkvæmd 1. og raunar óframkvæmanlegt í verki. Hún leggur því til, að þetta ákvæði verði fellt burt. Barnaverndarnefnd og barnaverndarráð í Rvík hafa sent n. andmæli gegn þessari breyt., en ég sé ekki ástæðu til að lesa þau andmæli hér upp að sinni.

Þá er næst að geta breytingar hv. Ed. við niðurlagsorð 23. gr. frv., sem verður þá á þá leið, að barnaverndarnefndum sé ekki heimilt að ráðstafa munaðarlausum börnum á heimili né hæli nema með samþykki nánustu ættingja þeirra. N. telur þetta ófært skilyrði og er sammála mótmælum barnaverndarnefndar Reykjavíkur gegn þessari breyt., en þau hljóða svo með leyfi hæstv. forseta:

„Við 23. gr. var gerð sú breyting, að í stað orðsins „samþykkir“ komi: og nánustu ættingjar samþykkja. Hér er enn takmarkað framkvæmdavald barnaverndarnefndar. Þótt n. hafi gott heimili fyrir munaðarlaust barn, getur hún ekki komið því þar fyrir nema með samþykki „nánustu ættingja“, sem ef til vill hafa aldrei skipt sér af barninu nema til óþurftar. Einkennilegt virðist að takmarka þarna vald n., sem í öðrum tilfellum getur tekið börn af heimilum foreldra, og það á móti vilja þeirra.“

Ég er það kunnug starfsháttum barnaverndarnefndar Reykjavíkur, að ég get fullvissað hv. dm. um, að hún er alltaf vön að taka tillit til ættingja barnanna í þessum efnum, þegar það kemur ekki í bága víð hag barnanna sjálfra. N. leggur til, að þetta ákvæði verði einnig fellt burt.

Þriðja brtt. n. á þskj. 547 er á þá leið, að aftur verði fellt inn í 33. gr. það, sem hv. Ed. felldi úr henni. Þessi gr. fjallar um það, að barnaverndarnefnd sé rétt og skylt að fylgjast með högum umkomulausra bar na, svo og þeirra barna, sem ekki njóta umsjónar nema annars foreldris eða hvorugs, en það ákvæði hefur Ed. fellt burt. Mér er ljóst, að sumir hv. þm. hafa hnotið um þessa setningu og talið þetta óþarfa afskiptasemi af hálfu barnaverndarnefndar. En þetta er misskilningur. Hér er aðeins um það að ræða, að barnaverndarnefnd gangi meira eða minna munaðarlausum börnum að nokkru leyti í foreldrastað. Til þess er veitt heimild samkv. 1. málsgr. þessarar gr., en n. lítur svo á, að hagur þessara barna sé betur tryggður, ef barnaverndarnefndir eru skyldaðar til slíks eftirlits, sem þær mundu fela trúnaðarmanni sínum eða umboðsmanni barnsins, og trúnaðarmaðurinn léti síðan n. vita, ef einhverra aðgerða væri þörf. Það vita allir, að betra er að koma í veg fyrir uppeldisgalla í tíma en bæta úr þeim eftir á, þegar þeir eru orðnir að vana, og hafa barnaverndarnefndir fengið dýra reynslu af því. En með þessu eiga trúnaðarmennirnir að fylgjast. Tökum t. d. það los, sem stafar af tíðum bústaðaskiptum og flækingi barna. Ef n. væri gert aðvart um slíkt, gætu þær í ýmsum tilfellum ýmist aðstoðað foreldra við að útvega þeim fastan samastað eða komið barninu fyrir, unz úr rætist. Í ýmsum nágrannalöndum okkar er sá háttur á hafður, t. d. í Danmörku, og hefur gefizt vel. N. lítur því svo á, að hagur barnanna verði betur tryggður, ef þetta ákvæði er aftur sett inn. Ég vænti þess svo, að hv. dm. séu sammála öllum brtt. heilbr.- og félmn. á þskj. 547 og samþykki þær.