27.03.1947
Efri deild: 101. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í B-deild Alþingistíðinda. (1954)
94. mál, vernd barna og ungmenna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Þegar þetta frv. var til umr. síðast hér í hv. þd., voru gerðar breyt. m. a. á 16. gr., 23. gr. og 33. gr. frv. og þær færðar í það form, sem þær eru nú í á þskj. 580. Þegar það svo kemur til Nd., er þetta fellt úr aftur og að því leyti fært í það sama form og áður var. Viðvíkjandi þessum þremur gr., 16., 23. og 33. gr., vildi ég segja nokkur orð. Um 16. gr. er það að segja að ég tel, að í henni sé gengið svo nálægt heimilisréttinum, að ekki sé við það búandi. Í því sambandi vil ég benda á það, að í Bretlandi hefur ekki sjálfur konungurinn rétt til að vaða inn á heimili manna á þann hátt, sem ráð er fyrir gert í frv. (GÍG: Hefur forseti Íslands það?) Ég veit það ekki, en menn, sem valdaminni eru en hann. Ég tel það í mesta máta varhugavert að lögfesta þessa gr., og vona ég, að hv. n. haldi fast við þessar brtt. (HV: Það gerði n. ekki.) Hv. þd. hefur þó gert það. Hvað víðvíkur 23. gr., þá er þar ætlazt til, ef brtt. mín verður ekki samþ., að barnaverndarnefnd hafi rétt til að ráðstafa börnum, sem hafa misst annað foreldri sitt, í fóstur án samþykkis ættingja þeirra. Ég trúi því ekki, fyrr en ég tek á því, að Alþ. samþykki þetta, og þetta skapar tæplega þá samúð með l., sem nauðsynlega þarf að vera fyrir hendi, til þess að þau komi að gagni. Það má segja, að þessu verði ekki misbeitt, en ef því verður aldrei beitt, þá er ástæðulaust að hafa það í l.
23. gr. frv., eins og gengið er frá henni í Nd., hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta : Ef barn verður munaðarlaust, skal barnaverndarnefnd aðstoða þá, er láta sig hag þess varða, eða hreppsnefnd eða framfærslunefnd við að koma því í fóstur á gott heimili, enda er óheimilt að vista slík börn á öðrum heimilum en þeim, sem barnaverndarnefnd, sú er í hlut á, samþykkir.
Ég verð að segja það, að mér þykir hart, að móðursystkini eða jafnvel systkini hafi ekki eins mikið vald til þess að ráðstafa börnum og barnaverndarnefnd og þurfi á leyfi hennar að halda til þess að ráðstafa barninu. Breyt. sú, er ég vil láta á þessu gera, er ekki önnur en að inn í greinina bætist á eftir orðunum „barnaverndarn. sú, er í hlut á“ orðin „og nánustu ættingjar, samþykkja“. (LJóh: En ef þeir eru nú ósammála?) Þá geta þeir fengið samþykki n. En ef systkini og barnaverndarn. eru ósammála, á þá n. að ráða? Ég tel mjög misráðið að samþykkja gr. eins og hún er óbreytt.
Hvað viðvíkur 33. gr. frv., þá hljóðar sá hluti hennar, sem deilt er um, þannig í frv.: „Skylt er n. að hafa eftirlit með slíkum börnum, svo og þeim börnum, sem ekki njóta umsjónar nema annars foreldris eða hvorugs, og má hún setja slíkum börnum eftirlitsmann, sem sé trúnaðarmaður hennar.“ Hún má með öðrum orðum hafa eftirlit með börnum, sem eiga annað foreldri á lífi, og grípa þar inn í að ástæðulausu. Ég vildi láta breyta þessu, sem hér segir: „Skylt er n. að hafa eftirlit með slíkum börnum, og má hún setja þeim eftirlitsmann, sem sé trúnaðarmaður hennar,“ þ. e. a. s. að það verði ekki einungis börn, sem misst hafa foreldra sína, sem komi undir þetta ákvæði um eftirlit, heldur komi þar undir börn, sem sérstök ástæða er til að fylgjast með. Barnaverndarnefnd hefur ekki leyfi til þess að setja börn á spjaldskrá, ef þau falla ekki undir þann hluta gr., sem þegar er í l., þ. e. a. s. 1. málsgr.
Ég skil ekkert í því kappi, sem fram kemur hjá meiri hl. n. í báðum d., að vilja setja þarna inn í ákvæði sem tvímælalaust koma til með að valda óánægju í framkvæmd l. Ég vænti þess, að hv. d. samþykki þessar brtt. mínar og haldi fast við það, sem áður hefur verið gert í málinu í þessari hv. d.