11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (2039)

132. mál, dýralæknar

Frsm. meiri hl. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Herra forseti. Það var talað um það við 2. umr. þessa máls, að ekki væri ástæða til að teygja lopann miklu lengur. En ég vil taka það fram, að nú er viðhorfið orðið nokkuð breytt, því að líkindi eru til, að lærður dýralæknir fáist í annað læknisumdæmið, sem stofna á samkvæmt þessu frv., og jafnvel er hægt að festa mann í hinu nú þegar, ef hann á víst að fá það að námi loknu. Þess vegna leggja flm. þessa frv., þm. Skagfirðinga, Húnvetninga og Snæfellinga, mikið kapp á, að það verði samþ., enda er það satt að segja dálítið einkennileg málsmeðferð að hleypa málum hér í gegnum þingið alveg að lokamarkinu, en drepa þau svo þar. Ég greiði því afdráttarlaust atkv. móti hinni rökst. dagskrá hv. 1. þm. N-M.

Ég efast ekki um góðan vilja landbrh. til að láta endurskoða og gera till. um skipan dýralæknamálanna í heild. En það verður ekki séð fyrir, hvenær því starfi muni ljúka til fulls. Slík mál eru oft tafsöm, og þó að slík endurskoðun sé fyrirhuguð, er síður en svo ástæða til að hætta við þetta frv. Það á að halda áfram, þó að ekki felist í því öll framtíðarlausnin. En hitt er fyllilega réttmætt að setja n. í málið í heild, er síðan getur lagt allt hið bezta til, og á hinn bóginn er það fjarri mér að fylgja þeirri aðferð að hleypa málum gegnum margar umr. hér, en reyna síðan að stúta þeim.

Umr. voru orðnar nógu langar um þetta mál við 2. umr. Ég vildi aðeins lýsa hér afstöðu minni, og ég geri ráð fyrir, að segja megi afstöðu okkar fjögurra nm. í meiri hl., sem skrifuðum undir sameiginlegt álit.