11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (2040)

132. mál, dýralæknar

Frsm. minni hl. (Páll Zóphóníasson) :

Herra forseti. Út af þeim rökum, sem hv. þm. Dal. færði fyrir því, að fella bæri hina rökst. dagskrá, er ég ber fram, vil ég segja þetta: Það er einn maður að leggja stund á dýralæknisnám, og hann á eftir á annað ár af námstímanum. Þetta er eini Íslendingurinn, sem er að læra til dýralæknis. Þó að hann kæmi, áður en sú endurskoðun dýralæknalaganna er um garð gengin, sem hæstv. landbrh. var hér að boða, þá er embætti laust eftir sem áður og maðurinn ekki á neinum hrakhólum, þó að sú endurskoðun drægist, sem allar líkur eru til. Þótt nú væru stofnuð dýralæknisumdæmi Dala- og Snæfellsnessýslu og Skagafjarðar- og Húnavatnssýslu, þá eru þau umdæmi ekkert betur sett nú en þótt stofnun þeirra væri slegið á frest. Það er bezt að segja það hreint út og draga ekki fjöður yfir neitt, að ef þetta frv. verður samþ., þá viðurkennir ríkið tvo menn, sem eru ólærðir. Undanfarin ár hafa Skagafjarðar- og Ísafjarðarsýsla búið við þær ástæður í þessum efnum, að þær hafa orðið að borga ólærðum mönnum, sem fengizt hafa við dýralækningar. Ef þetta frv. verður samþ., breytir það raunverulega ekki öðru en því, að ríkið gengur út á þá braut að viðurkenna þessa ólærðu menn og taka það ómak af sýslunum að borga þeim hluta af kaupi þeirra. Þetta er sannleikurinn; er máli skiptir, en ekki hitt, hvort Sverrir kemur í þetta eða hitt héraðið, því að endurskoðun þessara laga verður ekki lokið, áður en hann er búinn með sitt nám.