28.02.1947
Neðri deild: 83. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1465 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)

147. mál, vegalög

Frsm. (Sigurður Bjarnason) :

Herra forseti. Síðan frv. þetta, sem prentað er á þskj. 330, var flutt, hafa allmargar brtt. komið fram við það. Þess vegna hefur það orðið að ráði, þó n. þætti það helzt til langt gengið, að brtt. hv. þdm. yrðu teknar til athugunar að nýju og endurskoðaðar. N. hefur og rætt þessar brtt. við vegamálastjórann og fengið álit vegamálastjórnarinnar, og er það álit prentað með nál. sem fskj., en álit n. er á sérstöku fskj. Samkvæmt þessu er hér um 187 km viðbótartillögur að ræða, að við bættum 5,5 km, sem féllu úr við prentun. Ekki er ástæða til að fara mörgum orðum um þessa viðbót. Áður hafði n. nýjar till. um 534 km, og mun því nú vera um að raeða 727,5 km nýrra vega, sem lagt er til í frv., að gerðir verði. Ég vil leggja áherzlu á að nema nú staðar hér og að d. afgreiði málið með þeim breyt., sem hér liggja fyrir. N. hefur gert það, sem hægt var, til þess að uppfylla kröfur hv. þm. með tilliti til óska þeirra, en erfitt hefur verið að uppfylla kröfur einstakra þm. að fullu, en það skal þeim á bent, að ekki er hér verið að ganga frá l. að fullu fyrir alla framtíð og að l. þessi verða endurskoðuð á ný og reynslan mun skera hér úr, hvað heppilegast er, en ég legg áherzlu á, að ekki verði lengra haldið í breyt. og að þm. sætti sig við þessa afgreiðslu málsins. Ég óska, að lokið verði afgreiðslu þessa máls sem fyrst og að hv. Ed. vænti ekki of mikilla breyt. á því. Ekki er fleira að taka fram varðandi þetta, en persónulega segi ég hv. þm. frá því, að ég tel ekki fyllstu sanngirniskröfum héraðs míns nægilega sinnt, en vænti þess að njóta frekari sanngirni á næstu árum, er l. verða endurskoðuð, og ég legg megináherzlu á, að lokið verði við þá vegi, sem þegar eru íhugaðir.