25.03.1947
Efri deild: 99. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1471 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)

147. mál, vegalög

Frsm. (Eiríkur Einarsson) :

Herra forseti. Ég skal taka fram viðvíkjandi brtt. þeirri, sem hv. þm. N-Þ. flytur hér, að það virðast vera smávægilegir hlutir, sem þar er um að ræða, sem vel má vera, að færðir séu til betri vegar með breyt. Mér þykir þetta vera svo, að óathuguðu máli. En þegar málið er búið að sæta meðferð í hv. Nd. og er komið til samþykktar hv. Ed., og þó að ekki sé nema um smábreyt. að ræða á frv., þá á að gera sér grein fyrir því, hvað á að leggja sig í líma um að gera smábreyt. á frv. og tefja þar með fyrir frv. með því að endursenda það hv. Nd. með þeim afleiðingum, sem slíkt kann að hafa. Ég segi þess vegna um þessa brtt.,, sem ég er á þessu stigi málsins hvorki með eða á móti, að ég vil stuðla að því, að hún, ásamt öðrum brtt., sem fram kunna að koma, verði tekin til athugunar í samgmn. og það sé gert þar að álitamáli, hvort ástæða sé til að samþykkja þessa brtt. og endursenda frv. til Nd.

Ég vil að öðru leyti segja það við hv. 1. þm. N-M. og um hans málefni, sem hann hreyfði hér, sem sumt var stórbrotnara en brtt. hv. þm. N-Þ., að ég vil leggja til, að það verði gert að álitamáli í samgmn. á sama hátt og brtt. hv. þm. N-Þ. Hv. 1. þm. N-M. ræddi sérstaklega um Hvalfjarðarferjuna, og það er nú svo, að þær aðgerðir virtust fá nokkurn stuðning í aðgerðum hæstv. Alþ. í gær. Það er hins vegar alls ekki sönnun fyrir því, að hér sé ráðizt í hyggilega hluti. Og mér þykir ekkert undarlegt, þó að einhverjir hv. þm. verði til þess að gera þetta að álitamáli. En bæði um þetta atriði og eins um hina ýmsu þjóðvegi, sem gæti vel verið, að eitthvað betur mættu fara lagaákvæði um hér en fram er komið — og á ýmsum stöðum getur verið álitamál, hvað eigi að skíra vegina (PZ: Það er búið að skíra þá.) —, um allar þessar till. getur verið álitamál, eins og um það t. d., hvað kalla skuli vegina. Viðvíkjandi þessum brtt. og væntanlegum brtt., sem búið er að boða, þá vil ég segja það, að nauðsynlegt er að athuga þessar brtt. allar fyrir 3. umr. Vil ég með tilliti til þess skjóta því til hv. þm. N-M., að hann láti prenta sínar brtt. sem allra fyrst.