11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1479 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)

147. mál, vegalög

Frsm. (Eiríkur Einarsson) :

Herra forseti. Brtt. á tveim þskj., sem hér liggja fyrir, á frv. þessu hafa verið athugaðar af samgmn., og hefur hún komizt að þeirri niðurstöðu, að réttast sé að ganga frá frv. óbreyttu þrátt fyrir hugsanlegt réttmæti ýmissa atriða í þessum brtt. Það skal tekið fram, að hvað snertir brtt. á þskj. 567 frá hv. þm. N-Þ., þá hefur hann áskilið sér rétt til að standa með henni, og vildi ég lýsa því hér til að forðast misskilning. Um brtt. á þskj. 570 frá hv. þm. N-M., sem eru 16 að tölu, má segja, að þær hafi ekki allar verið lesnar svo mjög niður í kjölinn, þar sem sú skoðun varð ofan á að hleypa ekki málinu til Nd. Hitt er vitað, að margar brtt. hv. þm. N-M. eru aðeins smávægilegar nafnabreytingar og tilfærsla, sem ekki er mikils virði í sjálfu sér, enda skiptar skoðanir um réttmæti þeirra meðal þeirra, sem kunnugir eru þessum málum. Í þessu frv. er ein stór brtt., sem ágreiningi gæti valdið, en hún fjallar um vegagerð að Hvalfjarðarferju. Frá mínu sjónarmiði er þetta varasamt fyrirtæki og mun reynslan sýna það, en að hleypa málinu milli deilda yrði aðeins þingtöf, en árangur lítill. Um brtt. hv. þm. N-Þ. vil ég ítreka, að hún hefði vafalaust náð samþykki, ef málinu hefði verið hætt til Nd. Hvað snertir hv. þm. N-M., þá er þetta sextánliðaður sérgæðingur og er aðeins kannske eitt atr. í till. hans. sem hægt væri að samþykkja, en fulltrúar úr sveitum mundu fussa og sveia, er þeir sæju þessar smávægilegu nafnabreytingar, enda eru till. hans ekki nema til að skapa deilur og leiðindi. Það í vegalagafrv. að öðru leyti, sem verður til réttarbóta, er, að það eru vegir úr sýsluvegatölu gerðir að þjóðvegum. Margir þessir vegir eru nauðsynlegir, engu síður en margir vegir, sem voru í þjóðvegatölu áður. Afstaða þessara nýju vega, getur orðið mjög vafasöm, þar sem ekkert fé er ætlað til þeirra á fjárlögum nema eins þeirra og sýslusjóður þarf ekki að leggja neitt fé til þeirra. Nú er talað um, hvernig vegaféð eigi að koma að sem fyllstum notum. Till. lá fyrir um 300 þús. kr. veitingu til skiptingar milli þessara nýju vega, en ég held, að hv. fjvn. hafi ekki sinnt því, og ef það er ekki rétt, þá vona ég, að það verði leiðrétt. En óneitanlega er það hart, að ekkert skuli ætlað til vega, sem sviptir hafa verið aðstoð sýslnanna, og það því harðara sem mikil tilhneiging er hjá hv. fjvn. til sparnaðar, en samt hef ég heyrt, að n. hafi hækkað till. frá vegamálastjóra um allt að 85 þús. kr. Það sýnist því, að hér sé ærið misklipið við neglur. Þetta er ekki sagt til lofs eða lasts, en þetta verður að lesast niður í kjölinn og réttmætti þess látið ásannast. Ég mun svo ekki fjölyrða um þetta, en vildi aðeins minna á þetta, og ef ég fer með rangt mál, er ég fús að taka leiðréttingum.

Ég endurtek það, að samkomulag varð í samgmn. um það að mæla með samþykkt frv.