30.10.1946
Efri deild: 6. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í B-deild Alþingistíðinda. (210)
24. mál, tekjuskattsviðauki 1947
Gísli Jónsson:
Ég þakka undirtektir ráðh., en jafnvel þótt frv. yrði ekki samþ. fyrr en í marz, vil ég fresta því, af því að það verkar á tekjur ársins 1946. Ég vil ekki, að málið gangi til Nd., og bendi á, að ef það er ekkert deiluatriði, þá er hægt að fá það samþ. á 2–3 dögum. Þetta frv. hefur ekki verið vinsælt og hefur komið mjög ranglátlega niður, enda hafa menn aðeins sætt sig við það til bráðabirgða. Tel ég, að fresta beri þessu máli.