11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1491 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)
147. mál, vegalög
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Það hryggir mig, að mér finnst, að okkar ágæti aðalforseti sé farinn að gamlast. Það getur verið, að það sé af því, að hann sitji of nálægt hv. 1. landsk. þm. (SÁÓ) og að sá félagsskapur geri þetta að verkum. Ég fæ ekki skilið, hvernig hv. þm. Dal. fær það út úr minni ræðu, að ég hafi verið með neinar ásakanir í garð vegamálastjóra. Ég held, að enginn þm. í þessari hv. d. hafi tekið betur að sér að verja vegamálastjóra en ég. Ég minntist ekki á þann hátt á vegamálastjóra, hvað snertir þetta frv., að það gæti skilizt á þann veg, að nokkuð annað hljóð væri í mér en að hann stæði vel í stöðu sinni. Hins vegar minntist ég á það í sambandi við fjárveitingar til vega, að það væri leitt, að hann tæki fé utan við fjárlög til vega. Ef það er ásökun, þá á ég ekki sök á henni. Ég get lagt fram skjöl um það, að þetta hefur skeð.
Svo varð ég alveg steinhissa á því, þegar hv. þm. Dal. talar um það hér, hvernig hafi verið farið með sig hér viðkomandi vegamálum, þegar seinast voru opnuð vegal. Er þessi hv., þm. búinn að gleyma því, að hann fékk þá kost á vegi fram í Haukadal? Hann átti þá um tvær leiðir að velja um vegalagningu þarna, aðra styttri, en hina lengri. Hann valdi þá að fá þá styttri. Ég skýri ekki frá því hér, hvers vegna hann óskaði þess. En þessu er ekki hægt að snúa með neinni sanngirni upp í ásökun á mig. Og í héraði þessa hv. þm. eru komnir 70–80 km af vegum nú í viðbót við það, sem áður var í þjóðvegatölu. Ég er ekki að harma það.
Ef hv. þm. N-Þ. hefur verið borið það, að ég hafi verið að andmæla efnislega brtt. hans viðkomandi Mjóafirði, þá er það alrangt með farið. Ég sagði aðeins, að ég teldi ekki rétt að breyta neinu hér í þessu frv. nú, hvorki í þessu efni né öðru. En ég er ekkert á móti því, að allir vegir á landinu verði teknir í þjóðvegatölu, teknir þannig upp í vegakerfið, og ég vildi, að þannig væri tekið meira upp af útkjálkavegum en gert hefur verið. En ég vil benda hv. samgmn. á það, hvernig þessum vinnubrögðum var hagað síðast, þegar þessi mál lágu hér fyrir þessari hv. d. til afgreiðslu, og ég hélt, að það ætti að hafa nokkurn veginn sama hátt á hér nú til þess að tryggja framgang málsins, nefnilega, að þegar fullkomin samvinna var hjá samgmn. þessarar hv. d. við samgmn. hv. Nd. um það, að ekki kæmu fram neinar breyt. á frv. í síðari d., nema í fullu samræmi við samkomulag beggja samgmn. þingsins, samvinnun. samgöngumála, — þegar þessi samvinna hafði skapað samkomulag um frv., þá ætti alls ekki að breyta því neitt frá því, sem samkomulagið var gert um. Ef samkomulag er um þessar brtt. við samvinnun. samgöngumála, þá hef ég ekkert á móti því, að þær fari í gegn. (EE: Það er búið að segja síðasta orðið um það.) Þá er ég á móti öllum breyt. á frv. En það er ein brtt., sem mér þykir mjög leitt, að ekki skuli vera hægt að taka efnislega með í frv. Það er Hvalfjarðarferjuvegurinn. Það hefði sannarlega þurft að koma fram atkvgr. um efnishlið þeirrar till. En ég mun þó ekki hika við að greiða atkv. á móti brtt. á þskj. 570, vegna þess að ég vil ekki láta frv. þetta fara á milli d. nú.
Ég vil að síðustu ræða dálítið við hv. 2. þm. Árn. út af því, að hann talaði um mál, sem hann sagði, að kæmi ekki þessu máli við. Hann leiddi umr. sjálfur inn á þessa braut. Ég hefði getað búizt við því af hv. 2. þm. Árn., en ekki af manni, sem situr sem stendur í sæti form. samgmn., að hann væri svo starblindur á þessi mál, að hann kynni sér ekki málin betur en kom fram hjá honum, að hann þekkti til málanna, því að hann leyfði sér að segja, að „illu heilli“ héngi í byggð afskekkt hérað á þessu landi, og skildist vel, hvaða byggðarlag hann átti við. Nú skal ég skýra hv. form. samgmn. frá því alveg reiðilaust, að þetta hérað, sem hann var að tala um, er annað hérað í röðinni ofan frá af héruðum utan kaupstaðanna um að veita ríkissjóði tekjur. Að áliti hv. 2. þm. Árn. er „illu heilli“ þetta hérað í byggð, sem er nr. 2 ofan frá í að veita ríkissjóði tekjur, sem m. a. geta staðið undir Skálholtsskóla og að einhverju leyti undir Austurvegi og Ölfusárbrúnni betur en Árnessýsla, af því að Árnessýsla er lægri í gjöldum til ríkissjóðs. Þetta hérað er eitt af ósýktustu héruðunum á landinu viðkomandi sauðfjárrækt og er allra stærsta og bezta uppeldisstöð í þeirri grein í landinu, til þess að hægt sé að halda í byggð öðrum héruðum landsins. „Illu heilli“ er þetta hérað í byggð að áliti hv. 2. þm. Árn. Og af sveitakjördæmum landsins hefur þetta hérað greitt langhæstan stríðsgróðaskatt til ríkissjóðs á undanförnum árum. Að áliti hv. 2. þm. Árn. er það „illu heilli“, að þetta hérað „hangir í byggð“. Það er ekki furða, þó að lagzt sé á móti veitingu vegafjár í slíkt hérað! Nú vil ég einnig benda hv. form. samgmn. á það, að í þessu héraði liggur þorp, þar sem gerðir eru út tveir togarar jafnstórir og þeir, sem nú nýlega hafa verið byggðir fyrir ríkisstj. „Illu heilli“ „hangir“ þetta hérað í byggð. Þar er hraðfrystihús, sem mun gefa 2–3 millj. í gjaldeyri árlega, og þar er einnig verið að gera höfn. Og svo er verið að neita þessu þorpi um að komast í samband við nokkuð mjólkurframleiðslusvæði. Hv. 2. þm. Árn., formaður samgmn., hefur ekki meiri skilning á málefnum þessa héraðs en það, að hann leyfir sér að segja, að „illu heilli“ sé þetta hérað í byggð. Rétt skammt frá þessu héraði liggur Rauðisandur, en um þann stað hefur búnaðarmálastjóri fullyrt, að þar mætti hafa allt að því 1000 kýr. Þeim mönnum, sem þar búa, er alveg meinað að fá lífskjör sambærileg við íbúa ýmissa annarra héraða, t. d. Árnessýslu, af því að þeim er neitað um vegi til þess að geta komið frá sér mjólkinni. Nú er ekki svo sem, að maður sé hér að biðja um steinsteypta vegi, eins og t. d. Austurveg, heldur aðeins slarkfæran veg 25 km. Þarna eru stór býli, eins og t. d. Hagi, sem geta mælt sig við hvaða stórbýli sem er í Árnessýslu og Rangárvallasýslu. Þessu héraði er alveg neitað um alla möguleika til þess að hafa nokkurt samband við kaupstað, hvort sem er á sjó eða landi.
Í Tálknafirði er mjög blómleg byggð, og þar er að rísa upp hraðfrystihús. Um Patreksfjörð gegnir sama máli. Ef Patreksfjörður kæmist í vegasambandið, þá væri tiltölulega stutt að leggja veg til Bíldudals. Hvað eftir annað hefur verið neitað að skaffa fé til vegagerðar á þessum stöðum. Því hefur þó ekki verið neitað að taka á móti millj. kr. í erlendum gjaldeyri til bankanna, sem aflað hefur verið í þessu héraði. En svona er það þakklæti, sem þetta hérað fær. Og svo segir form. samgmn., að „illu heilli“ sé þetta hérað í byggð. Hann ætti heldur að kynna sér þetta betur eða að öðrum kosti segja af sér starfi í samgmn., því að það er ekki sæmilegt, að hann sé í formannssæti í þeirri n., meðan hann leyfir sér að tala svona.
Mér þykir vænt um, að þessu máli hefur verið hreyft. Það þarf að stinga á þessu kýli. Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þetta frekar að sinni.