11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)

147. mál, vegalög

Frsm. (Eiríkur Einarsson) :

Herra forseti. Ég ætlaði nú ekki að taka aftur til máls, en vegna hinnar básúnandi ræðu hv. þm. Barð., þá get ég — þótt það væru ómagaorð — ekki algerlega þagað við því, sem hann sagði við mig. Hann hefur minnt mig á málsterkan og dugríkan málfærslumann, en hann fer rangt með mál sitt. Annaðhvort er það af skilningsskorti eða af of lítilli sannleiksást, að aftur hefur snúið hjá honum það, sem fram skyldi snúa, af því, sem hann tók upp eftir mér. Hann margendurtók þetta orð, að ég sagði í minni ræðu „illu heilli“, og ég sagði, að það væri „illu heilli“, að svo væri komið, að þetta hérað aðeins héngi í byggð. Ef hv. þm. vill koma fram málum sínum með sams konar málfærslu og hann hefur hér beitt, þá öfunda ég ekki það lið, sem þar að býr. En ég hef ekki ástæðu til þess að ætla það, að hann hafi alltaf um hönd slíka málfærslu. Ég hygg, að honum hafi tekizt óvanalega óheppilega til hér nú með því að rangbeita þessum orðum mínum. Það er rétt, að það er „illu heilli“, að sveitabyggðunum íslenzku skuli þannig komið, að þær rétt hanga í byggð. Það væri góðu heilli, ef þær væru svo blómlegar, að þar væri gott að vera, og ef hv. þm. Barð. hefur þann skilningsskort eða ekki betri vilja til sannsögli en kom fram í ræðu hans, þá hygg ég, að hann ætti sjálfur að taka lífsbetrun. Ég veit, að atfylgi og dugnaður er hér fyrir hendi hjá honum, en það vantar rétta málfærslu. Hann vitnar til þess, hversu Barðastrandarsýsla gefur mikið í ríkissjóð í gjaldeyri vegna útgerðarinnar í þorpunum fyrst og fremst. Þetta er sjálfsagt laukrétt og góðra gjalda vert og þakkar sig sjálft. Þegar hann nefnir útgerðarstaði, sem afla gjaldeyris í landssjóð, þá tökum við Patreksfjörð. Ég held, að hann ætti að vera glaður yfir þessum blómlegu byggðum, og ég veit ekki betur en að hann hafi fengið hjá Alþingi framlög til þessa, en hann vill bara mála á vegginn einhverjar grýlur til þess að grípa til, svo að hann eigi í fórum sínum slagorð til að nota bæði hér og heima fyrir. En slíkar staðhæfingar sem þessar vil ég, að rekist öfugar aftan í hann. Ég veit ekki til þess, að ég hafi notað í ósæmandi merkingu á nokkurn hátt orðin „illu heilli“. Annars vil ég ekki eyða um þetta mörgum orðum. Það er ekki úr einu héraði, sem greiddur er mikill gjaldeyrir. Góðu heilli greiðir Barðastrandarsýsla mikið, en það má segja um fleiri staði, t. d. Siglufjörð, en þar er auðvitað líka þörf á vegasambandi. Ég vona, að hv. þm. Barð. sé svo hygginn um þetta mál sem hann hefur mikinn dugnað, að á komist vegasamband milli Patreksfjarðar, Suðurfjarða, Rauðasands og Barðastrandar. Og þar hefur hann ágæt rök, því að ég þykist hafa komið auga á, að þarna sé um höfuðnauðsyn að ræða og að hv. þm. Barð. hafi hér farið með rétt mál. En að ætla að launa þann skilning, sem þessu héraði hefur verið sýndur, með því að vera með slagorð og rangfærslur og ætla að gera mann að eins konar illviljuðum andstæðingi góðra mála, það eru þrælatök, sem hefna sín á þeim, sem þeim beitir, því þótt hægt sé að hræða menn með einhverjum galanda, þá verður það þó samvizkan heima fyrir, sem bítur, og verður alltaf mest refsing á slíkt framferði, og af því að hv. þm. Barð. hefur hér talað á móti betri vitund og beitt rangri málfærslu, þá á hann það við sína eigin samvizku, hversu vel hann hefur þar að verki verið. — Ég hef ekki meira að segja.