11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1495 í B-deild Alþingistíðinda. (2113)

147. mál, vegalög

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þær umr., sem fram hafa farið á milli mín og hv. 2. þm. Árn., eru að gefnu tilefni frá honum sjálfum. Hann byrjaði að ásaka fjvn. fyrir það — og þá sérstaklega mig sem formann n. — fyrir misskiptingu á vegafé og sneiddi þá sérstaklega að mínu héraði. Ég benti honum á, að Barðastrandarsýsla hefur aðeins fengið 1–2% af vegafénu, svo skal ég leggja skýrslur fyrir hann um það, því að þær eru í undirbúningi. Síðasta ræða hv. form. samgmn. lýsti því, að hann hefur skilið, hve mikil lífsnauðsyn það er fyrir þetta hérað, að gerð sé lagfæring á samgöngumálum þess. En hitt, hvernig hann snýr sínu máli, er vegna þess, að hann vill ekki verða undir í þessari baráttu. Það er aukaatriði. Aðalatriðið er, að hann hefur fengið þennan skilning, og vona ég, að framkoma hans í samgmn. verði eftir því, og þá getum við verið sáttir.