11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1496 í B-deild Alþingistíðinda. (2114)
147. mál, vegalög
Frsm. (Eiríkur Einarsson) :
Herra forseti. Viðvíkjandi því, sem hv. þm. Barð. sagði nú, hef ég engu að svara nema því, að það var á undan þessum þingfundi, sem mér var ljóst, að það þyrfti að gera umbætur á vegunum í Barðastrandarsýslu. Ég drap á það í því sem ég sagði áður, og samgöngubótum fyrir þetta hérað hefur verið fylgt eftir af hv. þm. kjördæmisins, og hann hefur þar ekki borið skarðan hlut frá borði, að svo miklu leyti sem þar þarf aðgerða við. Hann hefur setið nærri pottinum og verið matarþurfi, enda veitt töluvert upp úr honum, og við því er svo sem ekkert að segja.
En viðvíkjandi þessum margendurteknu prédikandi fyrirspurnum hv. 1. þm. N-M., hvers vegna ég sé á móti hinu og þessu í brtt. hans, eins og hann var nú að endurtaka í ræðu sinni, og skoraði á mig að svara hverju einu. Ég var nú búinn að svara því. Ég vil til nokkurrar glöggvunar aftur spyrja: Hví var það, að samgmn. beggja deilda ráðguðust í heild um vegatill., eins og þær lágu fyrir frá vegamálastjóra? Og reynt var í n. að komast að gagnkvæmu samkomulagi um hyggilegustu niðurstöðu þessara málefna. Það getur verið, að einhverjir vissir þm. hafi ekki vitað, hvað gert var að samkomulagi í þessum efnum, en yfirleitt held ég, að hv. þm. hafi átt prýðilegan kost á að fylgjast með þessu, og ég veit ekki betur en að nokkurn veginn almenn niðurstaða hafi orðið meðal þm. um að standa á frv. sem allra líkustu því, sem það var, og það var rætt af fulltrúum víðs vegar af landinu, sem sæti eiga í samvinnunefnd samgöngumála, svo að ekki var rennt alveg blint í sjóinn um þetta. Brtt. voru komnar frá skrifstofu vegamálastjóra, en ég vil nú segja, að þótt betur megi eitthvað fara í frv. en er í brtt., þá vil ég spyrja : Hverjum er betur treystandi til þess að sjá, hvað á að taka til greina í þessum efnum hverju sinni, en einmitt vegamálastjóra? Ég er ekki að halda því fram, að það sé sérstaklega þakkandi, því að gögn til þess að hafa góða yfirsýn í þessum málum og reynsla í þessum efnum er þar fyrir hendi, en ekki eins annars staðar. En öllum getur yfirsézt. Í öðru lagi er búið að ræða þessar till. ýtarlega við vegamálastjóra og samgmn. beggja deilda í sameiningu. Ef þetta er ekki bindingur í málinu til þeirrar niðurstöðu, sem verið er að feta að; þá veit ég ekki hvað.
Svo kemur hv. 1. þm. N-M. og gerir endurskoðun á þessu viðkomandi stöðum víðs vegar um landsbyggðina og spyr hvers vegna eigi að láta Þykkvabæjarveginn enda á þessum stað, en ekki hinum, eins og brtt. er um o. s. frv. Hvers vegna er það, að Rangæingar eiga tvo fulltrúa í Nd., og þeir hreyfa ekki þessu máli? Þeir voru ásáttir um að lofa málinu að ljúka eins og í frv. greinir. Er þetta ekki líka málsástæða? Svo spyr hv. 1. þm. N-M. um ýmsa aðra liði, sem líkt stendur á um. Sumar hans till. eru nafnabreytingar einar. (PZ: Ég vil ekki láta uppnefna staðina í l.) Sumar eru um að láta endastöð vega vera annars staðar, og ekkert af því er úr hans eigin kjördæmi. (PZ: Ekkert.) Vitanlega hefur hann sem þm. rétt til að flytja brtt. fyrir hvern stað sem er á landinu. En í báðum þingdeildum eru fulltrúar þeirra héraða, sem brtt. hans varða, og þeir hefðu getað sagt til í tíma um þessa hluti, ef þeim hefði verið um það gefið, en ég hygg, að hv. þingmönnum hafi yfirleitt verið ljóst, að það var verið að reyna að hafa allsherjarsamkomulag um vegamálin. Ég álít því sameiginlega svarað með því, sem ég hef sagt, og samgmn. ber skylda til að taka tillit til þessara raka minna, sem ég hef nú rætt, hvað sem hv. þm. N-M. segir sem forsvarsmaður hinna ýmsu héraða, og er ástæðulaust að taka forsjá hans. Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta nánar.