11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)
147. mál, vegalög
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vil aðeins benda á, að hv. frsm. samgmn. hefur ekki fært nein rök önnur en að hann óttist afskipti Nd. af málinu. Hann segir, að vegamálastjóri sé samþykkur frv. En hvað segir vegamálastjóri um Hvalfjarðarferjuveginn? Hann segir svo: „Ég hef jafnan talið hæpið, sérstaklega vegna stofnkostnaðar og ekki síður rekstrarkostnaðar ferjanna, að leggja í framkvæmdir þessar. Krókurinn inn fyrir Hvalfjörð, sem sparast, er um 47 km á landi, og tekur aksturinn nú um 1½ klst. Með ferjunni, má vænta, að sparist um ½–3/4 klst., meðan vegurinn er ekki betri en nú. Komi menn að ferju, þegar hún er nýfarin, hverfur þessi tímasparnaður og jafnvel enn meir. Hins vegar fylgir nokkur sparnaður í aksturskostnaði þá 47 km, sem landleiðin styttist um. Tefjist bifreiðar vegna biðar, minnkar tímasparnaður að sama skapi. Í þessu sambandi má og hafa í huga, að áður en langt um líður, verður vegurinn um Svínadal og Dragháls bættur svo, að margir munu kjósa frekar að leggja leið sína þar um, í stað þess að fara út fyrir Hafnarfjall, og styttist leiðin fyrir Hvalfjörð þá um 20 km.“ Þetta segir vegamálastjóri um Hvalfjarðarferjuna. Hví bar hv. þm. ekki þetta fyrir sig heldur en að vegamálastj. hefði mælt með frv., eins og það var með þessum brtt.? Hins vegar hefur n. ekki látið svo lítið að bera mínar brtt. fyrir vegamálastjóra.
Ég vil svo skora á n. og hæstv. forseta að fresta umr. og bera till. undir vegamálastjóra og samgmn. Nd., og verði ráðið fram úr þessu í samráði við þá aðila, og það, sem n. koma sér saman um, verði samþ. í báðum deildum. Þessar till. munu ekki koma af stað neinu stríði, og er nógur tími til að ræða frv., því að líkur eru til, að þingið standi fram í maí. Ég vil því fara fram á, að frestur sé veittur í málinu, til að n. geti tekið till. til athugunar og komið sér saman um, hverjar sé rétt að samþykkja. Hins vegar hefur hv. form. ekki getað mælt neitt á móti till., en aðeins verið með snakk um málið.