07.03.1947
Neðri deild: 88. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1500 í B-deild Alþingistíðinda. (2130)

137. mál, sala Stóruborgar í Grímsnesi

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Herra forseti. Landbn. hefur fengið þetta mál til athugunar. Og eftir að hafa athugað frv., leggur n. til, að samþ. verði að veita ríkisstj. heimild til að selja Grímsneshreppi þessa jörð. Það er í samræmi við það, sem tíðkazt hefur, bæði nú á þessu þingi og á undanförnum þingum, að hreppsfélögum hafi verið veitt heimild til þess að kaupa af ríkinu lönd og lóðir, sem hafa haft sérstaka þýðingu fyrir þá, eins og t. d. lóðir í kauptúnum. — Hér er um jörð að ræða, sem er miðdepill sveitarinnar. Þar er þinghús og má gera ráð fyrir, að þarna verði safnað saman fleiru, sem þessari sveit við kemur. Jörðin hefur ekki verið í ábúð, og hreppsfélaginu er hugleikið að fá umráð yfir jörðinni og gera henni eitthvað til góða.

Landbn. hefur því ekki séð ástæðu til annars en að mæla með því, að frv. verði samþ. með þeirri viðbót, að Grímsneshreppi sé óheimilt að selja jörðina öðrum en ríkissjóði, og þá fyrir kostnaðarverð. Þetta er samhljóða þeim skilyrðum, sem sett hafa verið viðkomandi öðrum stöðum á landinu um slíka hluti, og var því sjálfsagt að láta þetta skilyrði fylgja. Og hv. flm. þessa frv. hefur tjáð mér, að hann hafi ekkert við þessa brtt. að athuga.