07.03.1947
Neðri deild: 88. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1502 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

137. mál, sala Stóruborgar í Grímsnesi

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. 2. þm. Skagf., sem hann sagði um jarðir einstaklinga. Hér er um að ræða að selja hreppsfélagi jörð. Og mig minnir, að á þessu þingi væri fyrir skömmu heimilað að selja Sauðárkróki jörð og að þar væri þetta sett inn í l., að ekki mætti selja jörðina aftur nema ríkinu og þá fyrir kostnaðarverð. Og við vorum að tala um, að setja þyrfti inn í frv. ákvæði um það, að ekki mætti leigja lóðir af þessu landi nema til ákveðins tíma í einu. — En sannleikurinn er sá, að þó að þetta sé alveg í rétta átt, að sett sé ákvæði í l. um, að ekki megi selja jörð, sem ríkið selur, öðrum en ríkinu og þá fyrir kostnaðarverð, þá getur í þessu tilfelli Grímsneshreppur gert annað í millibilinu, áður en til þess kæmi, að hann seldi ríkinu aftur þessa jörð. Hann gæti leigt lóðir — af þessari jörð undir hús, ef þarna kæmu upp hverfi eða sveitaþorp, og þá getur hreppurinn leigt lóðirnar út með erfðafesturétti til langs tíma. Og þar með hefðu menn, sem hefðu þessar lóðir á leigu, öðlazt ákveðin réttindi. Og þessi réttindi, ef þau eru til langs tíma gefin, eru þá orðin eins þýðingarmikil eins og eign, þannig að ef ríkið ætlaði að kaupa þetta land seinna meir, þá selur jú eigandinn jörðina með kostnaðarverði, en þá verður ríkið líka að kaupa lóðaréttindin af handhöfum réttindanna. Og þetta stendur í vegi fyrir eðlilegri byggð á ýmsum stöðum, eins og sjálfur eignarrétturinn oft á tíðum, þegar þéttbýli er að rísa upp á sveitajörðum. Þá stendur þessi leiguréttur á lóðunum alveg eins í vegi fyrir því, að menn geti byggt, eins og sjálfur eignarrétturinn á löndunum og lóðunum. Og kunnast er dæmi um þetta frá Siglufirði, þar sem ríkið á jörðina sjálft og verður svo að kaupa lóðaréttindi á sinni eignarjörð fyrir margfalt verð á við kaupverð landsins sjálfs. — Ég álít því þörf á heildarlöggjöf um þetta efni og vissulega þá, að hún verði framkvæmd líka.