27.02.1947
Efri deild: 81. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (218)

24. mál, tekjuskattsviðauki 1947

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Það er nú svo skrítið, að ég er eiginlega sammála öllum, sem hér hafa talað. Ég er sammála þeim, sem vilja láta endurskoða skattalögin. Mér hefur lengi verið ljóst, að það er óhjákvæmilegt. Hins vegar verðum við að gá að, að nú eru komin febrúarlok og í öllum minni skattaumdæmum er búið að skila skattaskýrslum og skattanefndir eru byrjaðar að reikna út skattinn. Það er því útilokað að breyta því, sem skattanefndirnar eru farnar að gera. Ég vil því benda hv. ráðh. á það, að ef nú á að fara að breyta l. um tekju- og eignarskatt, verður að gefa út bráðabirgðalög og stöðva störf skattanefndanna eða fresta þeim, þar til samræmdur grundvöllur liggur fyrir, og þá hæfu n. störf sín aftur síðar á árinu. Annars eru öll þessi mál komin í eindaga, eins og raunar allt, sem fyrrv. ríkisstj. átti að sjá um. Þetta sé ég ekki að hægt sé að framkvæma nú.