13.01.1947
Efri deild: 49. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1540 í B-deild Alþingistíðinda. (2189)

41. mál, skipulag og hýsing prestssetra

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það mundi gleðja mig, ef vilji væri fyrir því hér í d. að hafa 5. gr. eins og hún var upphaflega í frv. En þessi gr. mætti allhörðum andmælum, og því gerði n. þessa orðalagsbreyt. til sátta og til að tryggja frv. framgang, en það, sem átt er við, er að veitt verði fé til fjögra prestsbústaða a. m. k. á ári, og er það vissulega framför frá því, sem er í gildandi lögum, þar sem aðeins skal veita styrk til tveggja, en samkv. frv. skal veita fé til 4 a. m. k., en vissulega er það útþynning frá frv. eins og það upphaflega var, og mundi ég fylgja brtt., ef fram kæmi um að færa orðalagið aftur eins og það upphaflega var.