15.01.1947
Efri deild: 51. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)
41. mál, skipulag og hýsing prestssetra
Eiríkur Einarsson:
Þótt ég viðurkenni, að lagfæringar þurfi við í þeim efnum, sem frv. fjallar um, þá tel ég hins vegar lauslega um þetta búið og málið ekki komið á þann rekspöl, að um framtíðarskipulag sé að ræða. Þess vegna vil ég ekki samþ. frv. og ekki heldur segja nei, því að úrbóta þarf við í þessu efni.
Brtt. 187,2 samþ. með 11:1 atkv.
— 206,2.b felld með 10:4 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu
já: PZ, GJ, HermJ, JJós.
nei: PM, SÁÓ, ÁS, BSt, BBen, BK, GÍG, HV, LJóh, ÞÞ.
StgrA, EE greiddu ekki atkv.
1 þm. (BrB) fjarstaddur.
Brtt. 206,2.c felld með 10:4 atkv.
— 187,3 samþ. með 10 shlj. atkv.
— 187,4 samþ. með 11 shlj. atkv.
— 187,5 samþ. með 12 shlj. atkv.
— 208,3.a-b teknar aftur.
— 187,6 samþ. með 10 shlj. atkv.
— 206,4 felld með 9:1 atkv.
— 228 samþ. með 11 shlj. atkv.
Frv., svo breytt, samþ. með 10:2 atkv. og afgr. til Nd.