07.03.1947
Efri deild: 87. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (2206)
41. mál, skipulag og hýsing prestssetra
Frsm. (Bernharð Stefánsson) :
Herra forseti. Hv. þm. Barð. (GJ) spurði, hvort n. hefði haft samráð við fjmrh. um þetta mál. Það hefur n. ekki gert, og hygg ég, að það sé ekki venja nema með fjvn. og fjhn. að ráðgast við fjmrh. En n. hefur ráðgazt við þann ráðh., sem málið heyrir undir, en það er kirkjumrh. Nú hefur hæstv. kirkjumrh. ekki komið á fund n. til þess að fjalla um þetta mál, en hann afhenti n. þó uppkast að till., sem mun hafa verið samið af biskupi landsins og átti að vera millivegur milli þess, sem samþykkt var í þessari d. og í Nd. og gekk í þá átt, sem nú liggur fyrir í till. frá okkur í menntmn. N. sýndist ekki svo mikill munur á þessu uppkasti og till. í gr. eins og hún fór frá þessari hv. d., að ástæða væri til að breyta þar um, og tók þann kostinn að setja frv. í. sama horf og það var samþykkt í hér.
Hv. þm. Barð. (GJ) vék að því hvað eftir annað, þegar málið var hér í fyrra sinni til umr. í d., að gefin hefðu verið loforð til presta hér í Rvík. Ég veit ekki svo gjörla um það, en ef þau loforð eru bindandi fyrir stj. og ríkissjóð, þá er vitanlega ekki annað fyrir hendi en að uppfylla þau, en menntmn. þessarar d. hefur engin slík bindandi loforð gefið.
Hv. þm. (GJ) vék að því, að þing gæti ekki tekið fjárveitingarvaldið af næsta þingi og skyldað það til þess að láta af hendi hinar og aðrar upphæðir. Um þetta má ræða aftur á bak og áfram. Ég held, að hvert þing taki af næsta þingi fjárveitingavaldið með því að samþykkja l., sem kosta útgjöld, er verður að taka upp á fjárl., og þetta hefur ekki hvað sízt verið gert á undanförnum árum. Vil ég í því sambandi minna á launal. og l. um almennar tryggingar. Það eru geysilegar fjárhæðir, sem ríkið verður að sjá fyrir og næstu þ. verða að finna leiðir til þess að fullnægja.
Ég held, að frsm. n. hafi bæði nú og við fyrri umr. þessa máls sýnt fram á nauðsyn þess að byggja upp prestssetur landsins, svo að ég þurfi ekki neinu þar við að bæta. Allir hljóta að viðurkenna, að það er nauðsynjamál. Hitt kann að vera rétt, að fjárhagurinn sé þannig, að erfitt sé að bæta þessu við ofan á allt annað; sem ríkið hefur á sig tekið. En ef svo fer, að ríkið skorti yfirleitt fé til þess að koma nauðsynjamálum áfram með sama hraða og menn hafa hugsað sér, sé ég ekki, að það eigi að ganga út yfir eitt einasta nauðsynjamál, heldur eigi það að ganga út yfir allt og gera hlutfallslegar lækkanir til þeirra framkvæmda og menningarmála, sem menn hafa hugsað sér, og það verði að gera með réttlæti og skipulagi. Ég álít það alveg eins mikið nauðsynjamál — og í rauninni æruspursmál fyrir íslenzka ríkið — að byggja sómasamlega yfir prestana, elztu embættismannastétt, landsins, eins og ýmislegt annað, sem tekið hefur verið í l. á síðustu árum.
Svo vil ég að lokum benda á það, að með þessari till., eins og hún er orðuð, eru engar nýjar kvaðir lagðar á ríkissjóð, sem ekki hafa verið þar áður. Samkv. l., sem hingað til hafa gilt, er skylda til að byggja 1–2 prestssetur á ári. Skv. þessari till. menntmn. er ekki bein skylda til að byggja nema eitt hús á ári, þó að markmiðið sé 4, ef hægt er. Það er ekkert lögbrot, þótt brtt. verði samþ., að veitt verði fé aðeins til eins prestsseturs. Það verður að gera það skv. till., en ef frv. verður samþ. eins og það kom frá hv. Nd., þá hvílir engin skylda á ríkissjóði að leggja neitt fram eða láta byggja nokkurt prestsseturshús. M. ö. o., með þessu er engin ný skylda lögð á ríkissjóðinn, en dregið úr þeirri skyldu, sem ríkissjóður hefur haft um mörg ár, ef frv. er samþ. óbreytt.