07.03.1947
Efri deild: 87. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)

41. mál, skipulag og hýsing prestssetra

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti. Ég óska eftir því, að þessari umr. verði frestað, bæði vegna þess, að nú standa til önnur fundarhöld, sem þm. þurfa að taka þátt í, og til þess að tóm gefist til að athuga þær brtt., sem nú eru fram komnar.