14.03.1947
Efri deild: 94. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1552 í B-deild Alþingistíðinda. (2225)
41. mál, skipulag og hýsing prestssetra
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Á síðasta fundi, þegar þetta mál var til umr., komu fram tvær brtt. við frv., önnur frá hv. 2. þm. Árn. um. að setja inn nýja 5. gr. á þann hátt, að áður en hafizt er handa til húsagerðar á prestssetri, skuli leita umsagnar sóknarnefndar um, hvort byggja skuli upp á sama stað eða öðrum. Hin brtt. er frá hæstv. dómsmrh., um að 2. málsgr. 9. gr., sem hljóðar svo: „Nú verður eigi samkomulag milli trúnaðarmanns kirkjumálaráðherra og hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarstjórnar um stærð og legu slíkrar lóðar, og skal þá ágreiningi skotið til skipulagsnefndar bæja og kauptúna til fullnaðarúrskurðar“ falli niður.
Menntmn. leggur gegn því að athuguðu máli, að brtt. hv. 2. þm. Árn. verði samþ. og telur tilganginum fullnægt með 1. gr. eins og hún er nú. Hins vegar getur n. fallizt á, að það sé meinlaust, þó að síðari hluti 9. gr. verði felldur niður. 1. málsgr. þeirrar gr. skiptir mestu máli. Þó hygg ég, að flestir menntmnm. muni heldur kjósa, að gr. verði samþ. í því formi, sem hún er nú. Um 5. gr. er enginn ágreiningur, og vil ég segja f. h. n., að hún leggur áherzlu á, að 5. gr. verði samþ. eins og hún leggur til, svo að hún sé bein ábending um þá stefnu, er hafa skuli í þessu máli. Telur n., að það sé alls ekki of langt gengið í því að skerða fjárveitingarvald síðari þinga með þessari ábendingu. N. þætti því mjög miður, ef hv. d. sæi sér ekki fært að samþykkja þetta orðalag, að byggja skuli allt að 4 húsum á ári. — Fleiri orð læt ég ekki fylgja fyrir n. hönd.