25.03.1947
Neðri deild: 101. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1554 í B-deild Alþingistíðinda. (2230)

41. mál, skipulag og hýsing prestssetra

Frsm. (Páll Þorsteinsson) :

Hv. 6. þm. Reykv. hefur skýrt frá eðli þessa máls. Þegar það var hér til umr. í þessari hv. d. fyrir nokkru síðan, stóð menntmn. sameiginlega að því, að 5. gr. yrði breytt. En hv. Ed. vill ekki á þá breyt. fallast, eins og hér hefur verið skýrt frá. Þar sem ég tel hér ekki um stórvægilegt efnisatriði að ræða, þá tel ég ekki ástæðu að etja slíkt kapp í þessu máli, að málið komi fyrir Sþ. Ég vil því sættast á að samþykkja málið í því formi, sem það nú liggur fyrir eftir afgreiðslu Ed. Þess vegna stend ég ekki að brtt. á þskj. 563 og mun ekki greiða henni atkv. eins og málið liggur nú fyrir.