17.04.1947
Sameinað þing: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (2237)

41. mál, skipulag og hýsing prestssetra

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Menntmn. Ed. hefur haft nokkuð mikil afskipti af þessu máli, og síðan málið var seinast til umr. í Ed., hefur Nd. gert á því breyt., á 5. gr. Þar sem menntmn. Ed. telur, að ekki séu líkur til þess, að till. n. nái hér 2/3 atkv., þá mun menntmn. Ed. ekki sjá sér annað fært en beita sér fyrir því, að frv. um skipulag og hýsing prestssetra verði afgr. í samræmi við það, sem hv. Ed. hefur lagt til og málið liggur fyrir núna.