28.02.1947
Neðri deild: 83. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1559 í B-deild Alþingistíðinda. (2265)

173. mál, raforkulög

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Hér er um veigalitla breyt. að ræða um raforkuráð. N. var kosin í málið 29. apríl til 4 ára, en það þykir rétt að taka það fram í gr., að það sé til almanaksára, en þessi kjörtími er útrunninn 31. desember 1949. Þetta er aðeins eðlileg breyting, og ég fjölyrði ekki um það frekar.