18.04.1947
Efri deild: 120. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1559 í B-deild Alþingistíðinda. (2272)
173. mál, raforkulög
Frsm. (Eiríkur Einarsson) :
Herra forseti. Þetta frv., sem er borið fram í hv. Nd. og hefur fengið þar venjulega meðferð, er komið þetta áleiðis hér, eins og frv. ber með sér.
Það má heita, að frv. sé í aðalatriðum aðeins leiðrétting á skekkju, sem komst inn í l. Með frv., eins og það er nú komið, er þetta fært til betri og réttari vegar í þeim greinum. Og ég held, að 1. taki ekki neinum breytingum að öðru leyti, heldur er aðeins þarna að ræða um orðabreytingu á einum stað, þar sem talað er um árabilið, þá skal miða það við almanaksárið.
Ég álít alveg óþarft að vera að fjölyrða um þetta mál og vænti þess, að frv. nái samþykki, eins og iðnn. mælir með að. verði.