26.11.1946
Efri deild: 20. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1561 í B-deild Alþingistíðinda. (2283)

42. mál, sala Hringverskots í Ólafsfirði

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég vil þakka landbn. fyrir afgreiðslu þessa máls, þar sem hún mælir með því, að frv. verði samþ. Út af því, sem hv. frsm. ræddi um, hvað ætti að leggja til grundvallar fyrir söluverði jarðarinnar, þá skal ég ekki fara langt út í það. Ég er honum mikið til sammála um það, sem hann tók fram um það, og hann mun hafa skýrt rétt frá ástandi jarðarinnar. Ég hygg aðeins, að það þurfi ekki að slá svo mikinn varnagla við eins og n. virðist álíta, að jörðin verði ekki seld fyrir núverandi fasteignamatsverð, því að þegar samningar koma til greina, þá held ég, að það sé alls ekki farið eftir gildandi fasteignamati, heldur fari nýtt mat fram á þeim jörðum, sem seldar eru úr eigu ríkisins. Ég er honum sammála um, að svo verði einnig gert hér, og sjálfsagt að taka þá allar ástæður til greina og þar á meðal, hvaða nytjar ríkið hefur afjörðinni nú og hvaða líkur eru til, að það muni hafa.