10.03.1947
Neðri deild: 89. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (237)
24. mál, tekjuskattsviðauki 1947
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. — Það er nánast til þess að lýsa atkv. mínu, ef svo fer, að þetta mál verður hér til atkvgr. endanlega á þessum fundi. sem ég vil segja nokkur orð.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hæstv. ríkisstj. hefur lýst því yfir. að hún muni afgreiða fjárl. tekjuhallalaus a.m.k. Og það er einnig kunnara en frá þurfi að segja, að til þess að svo megi verða, vantar verulega upphæð, sem afla verður með nýrri tekjuöflun, og varla getur verið langt þess að bíða, að það verði lagt fyrir þingið.
Nú vil ég segja, að út af fyrir sig er ég ekki mótfallinn þessu frv. En vel gæti svo farið, að önnur tekjuöflunarfrv., sem hér væru lögð fram, gengju í þá átt, að þetta frv. yrði að teljast óþarft eða óheppilegt. Mér hefði því fundizt ákaflega eðlilegt, að afgreiðsla þessa máls hefði beðið þess, að séð hefði verið, hvaða leiðir aðrar hæstv. ríkisstj. hyggst að fara til tekjuöflunar. Og ég vildi leyfa mér að bera fram þá ósk, að frv. þetta, sem hér liggur fyrir, mætti biða, þangað til þessar væntanlegu till. hæstv. ríkisstj. liggja fyrir. Fari svo, að ekki þyki fært að verða við því, mun ég á þessu stigi málsins greiða atkv. gegn þessu frv. Ég get í sambandi við þetta getið þess, að í hv. Ed. var haldið fram svipuðu sjónarmiði eins og ég hér hef nefnt og það ekki aðeins af stjórnarandstæðingum, heldur einmitt af einum stuðningsmanni hæstv. ríkisstj., sem mun hafa greitt atkv. gegn frv., einmitt með þeim forsendum. að hann væri ekki búinn að fá heildaryfirlit yfir þær leiðir, sem hæstv. ríkisstj. hyggst að fara til þess að skila tekjuhallalausum fjári., og meðan svo væri, sæi hann sér ekki fært að greiða atkv. með svona máli.