10.03.1947
Neðri deild: 89. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í B-deild Alþingistíðinda. (239)
24. mál, tekjuskattsviðauki 1947
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. — Ég geri mér það fyllilega ljóst, að þörf er fyrir þær tekjur í ríkissjóð, sem gert er ráð fyrir að ná með þessu frv. Ég geri mér það líka ljóst, að þetta frv. er búið að samþykkja oftar en einu sinni á hæstv. Alþ. áður og að þessi l. hafa verið framlengd frá ári til árs. En hitt held ég, að hv. þm. geri sér einnig allir ljóst, að vel mætti svo fara, að tekjuöflunarfrv. hæstv. ríkisstj. þyngdu svo kosti þeirra manna, sem fyrst og fremst eiga að bera skatt af þessu frv., í einni eða annarri mynd, að of langt þætti gengið. Þess vegna er það næsta eðlileg ósk, að það fáist heildaryfirlit yfir þær leiðir, sem hæstv. ríkisstj. hyggst að fara til meiri tekjuöflunar en eftir gildandi l., áður en tekin er afstaða til einstakra till. um tekjuöflunarleiðir hæstv. ríkisstj. — Eins og ég hef lýst yfir áður, fyndist mér eðlilegt og æskilegt, að þetta mál væri látið bíða nú, af þessum ástæðum, sem ég hef greint. En verði meðferð málsins ekki hagað svo, sé ég mér ekki annað fært en að greiða atkv. á móti frv., þó að vel mætti svo skipast, þegar ég fengi að sjá allar till. hæstv. ríkisstj. til tekjuöflunar, að ég gæti orðið með þessu frv.