29.04.1947
Neðri deild: 119. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1600 í B-deild Alþingistíðinda. (2408)
198. mál, tunnusmíði
Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :
Herra forseti. Ég frestaði framsöguræðu minni við 2. umr., vegna þess að frsm. minni hl. sjútvn., hv. þm. Siglf., var þá ekki hér viðstaddur einhverra hluta vegna, svo að málið tafðist vegna fjarveru hans hér í d., og eins var það í n. Hann hefur gefið út nál. á 5 blaðsíðum, sem er einstakt í sinni röð, því að það kemur lítið nálægt málinu sjálfu, en er að mestu árásir á síldarútvegsnefnd. Þessi nefnd hefur starfað síðan 1935 og ætíð verið þannig skipuð, að í henni eiga sæti fulltrúar frá öllum flokkum og nú síðast tveir fulltrúar frá flokki hv. þm. Siglf. um skeið átti hann sjálfur sæti í síldarútvegsnefnd, og hefði honum því betur sæmt að bera blak af n. en bera hana ósönnum sökum.
Ég vil nú biðja hæstv. forseta velvirðingar fyrir fram á því, ef honum virðist ég fara út fyrir efnið í ræðu minni, en það er að gefnu tilefni, nál., sem ég minntist á áðan.
Þetta nál. mun vera eitt furðulegasta plagg, sem sézt hefur á Alþingi, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, að það er samið og undirritað af fyrrverandi meðlim síldarútvegsnefndar og fyrrverandi atvmrh., yfirmanni þessarar nefndar, og ætti að mega gera ráð fyrir, að þm. hefði nokkra hugmynd um starfsemi n. og eitthvert brot af þekkingu á starfsviði því, sem henni er ætlað lögum samkvæmt. Svo virðist þó ekki, heldur er í þessu nál. þyrlað upp ósannindum og vaðli um störf n. og hún borin sökum, sem ekki eiga nokkra stoð í veruleikanum, svo sem opinberar skýrslur sanna.
Þm. virðist ganga út frá því, að síldarútvegsnefnd hafi frá byrjun haft einkasölu á allri síld, og gerir ályktanir sínar út frá því. Er þetta eins og fleira alrangt. Síldarútvegsnefnd hefur starfað í 12 sumur (vertíðir), þar af haft einkaútflutning á aðeins léttverkaðri síld (matéssíld) í 6 ár, engan einkaútflutning í 2 ár (annaðist að vísu annað árið sölu síldar fyrir nokkra saltendur samkv. beiðni þeirra, en annað árið enga sölu, þá selt af sölusamlagi síldarsaltenda og samvinnufélagi Ísfirðinga) og haft einkasölu allrar síldar í 4 ár. Samkvæmt lögum nr. 74 frá 29 des. 1934, má skipta verkefni síldarútvegsnefndar í 4 aðalatriði :
1. Sala síldar (einstakra tegunda eða allrar), ef henni er falið það af ráðherra.
2. Ákvörðun lágmarksverðs fersksíldar og lágmarksverðs útfluttrar síldar.
3. Löggilding útflytjenda, síldarsaltenda og úthlutun veiðileyfa til skipa og söltunarleyfa til stöðva. Samkv. l. má enginn bjóða síld til sölu á erlendum markaði eða flytja út síld nema með leyfi Síldarútvegsnefndar.
4. Styrkja nýjar verkunaraðferðir, veiðiaðferðir og afla nýrra markaða.
Eins og séð verður af þessu, er n. ekki ætlað að kaupa inn tunnur eða salt, og ekki til þess heimild samkv. þessum lögum, þó að n. hins vegar hafi þurft að gera þetta í misjafnlega stórum stíl, eins og ég kem að síðar. Þar sem þm. byggir þannig álit sitt og ádeilur á Síldarútvegsnefnd á alröngum forsendum, er ekki furða, þó að fullyrðingar hans um störf hennar fái ekki staðizt, en margt af því, sem hann fullyrðir, er beinlínis uppspuni og ósannindi, eins og nú mun verða vikið að, þó að reyndar verði látið nægja að hrekja helztu rangfærslurnar.
Þm. fullyrðir, að liðið hafi mánuðir frá því, að síldarútvegsnefnd tók við andvirði saltsíldar, og þar til hún greiddi saltendum það. Þetta er algerlega rangt. Síldarsaltendum var greitt um leið og n. fékk peningana í sínar hendur 80–90% af andvirði síldarinnar, en samkv. reglugerð bar henni að halda hinu eftir, þar til sala allrar síldarinnar var farin fram. Var enda oft greidd viðbótargreiðsla, þegar á leið sölutímann og sýnt var, að öll síld seldist fyrir ákveðið verð, þannig að þegar upp var gert að síðustu, áttu saltendur ekki inni nema 5–7% af andvirðinu, sem þá var strax greitt. Þetta er mér persónulega kunnugt, meðan ég átti sæti í n., og er mér tjáð, að síðar hafi sama regla gilt. Það má vel vera, að það rugli þm., að greiðsla fyrir síldina, sem tryggð er með rembours, kemur oft ekki til n. fyrr en síldin er afhent eða réttara sagt skjölin (farmskírteini o. fl.), þegar hún er komin á áfangastað, og hann haldi í fávísi sinni, að undir öllum kringumstæðum fái síldarútvegsnefnd greiðslu, þegar síldinni er afskipað. Bækur og skýrslur síldarútvegsnefndar sýna, að þetta er rétt, og er furðu ósvífið að vera með slíkar fullyrðingar sem þessar. Mér er ekki kunnugt um, að nokkurn tíma hafi risið misklíð milli síldarsaltenda og síldarútvegsnefndar vegna útborgunar á þá síld, sem síldarútvegsnefnd hefur haft til sölumeðferðar.
Eins og áður er að vikið, er ekki til þess ætlazt með lögum um síldarútvegsnefnd, að hún kaupi inn tunnur og salt. Það kom þó fljótt í ljós, að ýmsum smærri saltendum var um megn að útvega sér nægar tunnur til söltunar og þá einkum og sér í lagi undir matéssíld, sérstaklega skozkar tunnur undir síld á Ameríkumarkað. Síldarútvegsnefnd tók því þann kostinn að létta saltendum þessa útvegun, ýmist með því að ábyrgjast hinum innlendu tunnuframleiðendum (á Akureyri og Siglufirði) greiðslu þeirra tunna, er fóru undir matéssíld, eða að kaupa inn skozkar tunnur undir Ameríkusíld og afhenda saltendum, en greiðsla fyrir þær tunnur var síðan dregin frá andvirði útfluttrar síldar. Má af þessu marka fleipur þm. um andúð síldarútvegsnefndar á tunnuverksmiðjunum, þar sem oftast eina trygging þeirra var að selja til saltenda með ábyrgð síldarútvegsnefndar. N. keypti aldrei inn norskar tunnur, heldur önnuðust síldarsaltendur sjálfir þau innkaup. Það verður því að skrifast á þeirra reikning, ef fluttar hafa verið inn lélegar tunnur. Hitt er svo annað mál, að síldarútvegsnefnd var það ljóst, að sjálfsagt væri, að einungis yrðu fluttar inn góðar og samstæðar tunnur, og þess vegna voru fyrir hennar atbeina samþ. l. á Alþ., sem ákveða um gerð og gæði innfluttra tunna. Þessi l. áttu að koma til framkvæmda á styrjaldarárunum, en var frestað vegna vandkvæða, sem þá og síðar hafa verið á því að fá fyrsta flokks tunnur. Sýnir þetta einmitt gagnstætt því, sem þm. vill vera láta, að síldarútvegsnefnd hafði þessi mál til athugunar og lét þau ekki afskiptalaus, en einmitt framkvæmd tunnulaganna mun stórbæta aðstöðu íslenzkra tunnuverksmiðja í samkepppni við þær erlendu.
N. hefur ávallt haft í sinni þjónustu menn, sem hafa sérþekkingu á tunnum og tunnuefni og tunnusmíði. Má þar til nefna Magnús Vagnsson, sem var í þjónustu n., þar til hann varð matsstjóri fyrir nokkrum árum, og ávallt hefur verið reiðubúinn að starfa fyrir n. að skoðun og móttöku tunna og tunnuefnis, girðis o. fl. og er m. a. nú erlendis á vegum síldarútvegsnefndar í þessum erindum. Þá má einnig nefna Harald Gunnlaugsson, en auk þessara tveggja hafa verið í n. og hjá n. aðrir, sem góða þekkingu hafa í þessum efnum. Þegar þetta er athugað, að síldarútvegsnefnd keypti inn aðeins skozkar tunnur, sem eru viðurkenndar fyrir efni og gæði, og það undir umsjón færustu manna, verður að skoða ummæli þm. um, að stundum hafi tunnurnar verið afleitar, sprottin af þekkingarleysi á þessum málum eða fávizku. Aðeins einu sinni varð n. fyrir óhöppum við kaup á tunnum, ekki frá útlöndum, heldur frá tunnuverksmiðju Siglufjarðar. Þetta var þó ekki um að kenna smíði tunnanna, heldur vegna þess, að efnið var lélegt. Þetta viðurkenndi forstjórinn og gerði það, sem hann gat, til þess að bæta úr. N. gafst þó ekki að heldur upp á því að kaupa tunnur af tunnuverksmiðjunni, heldur hélt áfram, enda reyndust þær mun betur síðar og tunnur, sem framleiddar voru þar s. l. ár, voru góðar að öllum frágangi. Önnur ummæli þm. um, að síldarútvegsnefnd hafi rekið áróður gegn hinum íslenzku tunnuverksmiðjum, eru á sömu rökum reist og þau, sem að framan hafa verið rakin, þ. e. þau eru ósannindi og rangfærslur eða byggð á fávísi þm. um þessi mál. Síldarútvegsnefnd fylgdist af áhuga og velvild með þessari framleiðslu, eins og áður er sýnt fram á, og brýndi hún jafnan fyrir þessum aðilum að vanda sem allra mest val efnis og alla vinnu. Mun það ekki sízt því að þakka, að þessum iðnaði hefur fleygt fram í þeim efnum. Síldarútvegsnefnd hafði fyrir stríð hvorki aðstöðu né heimild til þess að kaupa alla framleiðslu þessara fyrirtækja, þar sem n. hafði aðeins hluta framleiðslunnar til sölu, en auk þess var hverjum saltanda heimilt að flytja inn tunnur undir síld sína, og gerðu það flestir þeir stærri. Ef síldarútvegsnefnd hefði keypt á hverjum tíma mun meiri tunnur en hún vissi, að yrðu notaðar, hefði það leitt til þess, að tunnur n. hefðu legið, gengið úr sér og orðið ónýtar. Af því gat ekki leitt annað en tap, sem aftur hefði lent á saltendum, þeim til tjóns, en engum til gagns, sams konar tap og reið gömlu síldareinkasölunni að fullu.
Þm. verður mjög tíðrætt um það, sem hann nefnir „einokunaraðstöðu Svía“ og hann telur vera í því fólgið, að þessir kaupendur að nokkru leyti keyptu síld og vinnu, en legðu til tunnur, salt, sykur og krydd. Er rétt að athuga þetta nokkru nánar.
Öllum saltendum ber saman um, að hagkvæmasta verkunin sé að sykursalta eða kryddsalta síld. Ber þar margt til, en þó sérstaklega tvennt. Hægt er að nota eldri síld til þessarar söltunar, en t. d. til matésverkunar eða cutsíldar. Þess vegna er hægt að salta meira í einni söltun og á skemmri tíma af hverju veiðiskipi, og fersksíldin nýtist betur. Þá er það viðurkennd staðreynd, að þessum tegundum síldar er miklu síður hætt við skemmdum en annarri síld. Þess vegna var reynt eftir megni að færa þessa verkun inn í landið, en hún hafði áður en síldarútvegsnefnd tók til starfa mjög færzt út til fiskiskipanna erlendu, og tókst þetta svo vel, að 1938 mun hafa verið verkað meira en nokkru sinni áður eða um 70000 tunnur þessara tegunda. Svíar lögðu útifiskurunum til tunnur, sykur, salt og krydd til þessarar verkunar. Sama vildu þeir einnig gera í landi, og bar þá aðallega það til, að hver verksmiðja hefur sínar eigin blöndur á kryddi, sem vakað er yfir sem leyndarmáli, og vildi því leggja kryddið til blandað, og svo hitt, að oft voru notaðar gamlar tunnur undir kryddsíldina. Þess vegna var það svo, að n. ákvað tvenns konar verð á síldinni, annað með tunnum, salti o. s. frv. og hitt án tunna og salts. Ef þm. vildi nú gera sér það ómak að bera saman þessi tvö verð, annars vegar excl. verðið og svo þáverandi gangverð á tunnum og salti o. s. frv., þá hygg ég, að hann mundi komast að raun um, að excl. verðið var í flestum tilfellum mun hagstæðara fyrir saltandann, en auk þess var hann búinn að fá tryggingu fyrir því, að síldin yrði tekin, sem annars gat oft brugðizt, þar sem kaupandinn átti tunnur o. fl. undir síldinni og hafði þar með tekið á sig hluta af áhættunni, enda var nýsíldin ætíð viðurkennd af umboðsmanni kaupanda, áður en söltun hófst. Hitt er svo alrangt, að Svíar hafi lagt til tunnur undir alla síld, sem þeir keyptu. Íslendingar fluttu inn mikið magn af tunnum frá Noregi, bæði undir matéssíld og síld, sem seld var til Svíþjóðar og á aðra markaði. Það er þess vegna rangt, að Svíar hafi raunverulega lánað saltendum þessar tunnur, salt, krydd o. s. frv., heldur lögðu þeir það til, og það var þeirra eign og á þeirra ábyrgð allan tímann, notað eða ekki notað. Af þessu verður séð, að fullyrðingar þm. um, að þessi verzlun út af fyrir sig hafi skaðað þjóðina um tugi milljóna, eru alrangar, en um fullyrðingar hans um lækkun síldarverðs af þessum ástæðum mun ég ræða síðar. Innlenda tunnuframleiðslan var út af fyrir sig engin trygging fyrir því, að Svíar gætu ekki, ef þeir hefðu viljað, ráðið yfir tómtunnum, meðan þeim ekki var bannað að kaupa tunnur, framleiddar hér á landi, enda eru dæmi þess, að þeir keyptu hér 20–40 þúsund tunnur af íslenzkri framleiðslu eitt árið.
Meðan ég átti sæti í síldarútvegsnefnd, hafði hún ekki með höndum neina sölu á síld til Svía að undanteknum nokkrum þúsundum tunna og þá fyrir ágætt verð og á árinu 1940, er n. seldi þeim alla framleiðslu af cutsíld, um 40000 tunnur, með tunnum og salti og fyrir hátt verð, en þessa síld greiddu Svíar og tóku við henni hér á landi, en þessa sölu kom í minn hlut að undirbúa þann tíma er ég dvaldi í Svíþjóð sumarið 1940. Eins og kunnugt er, komust ekki nema um 15 þúsund tunnur af þessari síld til Svíþjóðar, en hitt var geymt hér á ábyrgð Svía í tvö ár, en síðar selt til bræðslu - og skepnufóðurs fyrir lágt verð.
Eins og ég gat um áður, er eitt af höfuðverkefnum síldarútvegsnefndar að ákveða lágmarksútflutningsverð. Þetta verð þurftu Svíar að greiða. Samningar, sem gerðir voru við lægra verði, voru ekki viðurkenndir og eyðilagðir. Þm. getur verið þess fullviss, að marga slíka þurfti að eyðileggja á fyrstu starfsárum síldarútvegsnefndar. Þm. talar enn af fávizku eða lætur verri hvatir ráða, þegar hann heldur því fram, að saltendur hafi orðið að sitja við það verð, er Svíar buðu. Það var síldarútvegsnefnd, er ákvað verðið, og ef þm. vill gera sér það ómak að leita enn upplýsinga aftur í fortíðina, ætti hann að bera saman það verð, sem Svíar greiddu fyrir íslenzku síldina, og það verð sem þeir greiddu fyrir norskveidda Íslandssíld. Mundi hann þá enn komast að þeirri niðurstöðu, að hann hallar mjög réttu máli.
Eitt atriði má enn nefna til þess að hrekja staðleysur þm. um undirlægjuhátt síldarútvegsnefndar gagnvart sænskum síldarkaupendum. Síldarútvegsnefnd komst að því eitt sumar, að nokkrir saltendur gerðu tilraun til þess að selja Svíum síld undir lágmarksverði nefndarinnar. N. fól þegar tveimur mönnum að rannsaka bókhald allra löggiltra saltenda og komst þá að því, að nokkur brögð voru að þessu. Var þetta þegar stöðvað, og er óhætt að fullyrða, að fyrir þessar aðgerðir síldarútvegsnefndar græddu saltendur nokkuð fé, auk þess sem sænskir kaupendur reyndu ekki aftur að fara þessa leið, þar eð þeir vissu, að á valdi síldarútvegsnefndar var að koma í veg fyrir, að þeir saltendur, sem slíkt hefðu gert, yrðu löggiltir sem seljendur áfram. Hér er því málunum beinlínis snúið við. Það var síldarútvegsnefnd, sem tók upp baráttuna gegn þessum ósóma, en saltendur, sem höfðu byrjað hann. En þetta kallar þm. að taka taum Svíanna og hossa þeim.
Einhver alósvífnasta árásin á síldarútvegsnefnd er í þessu furðulega plaggi, þegar þm. telur, að n. hafi gripið fram fyrir hendur á saltendum og samið við Svía um lægra verð á síld 1939 en þeir sjálfir hefðu getað náð. Hér er svo rangt með farið, að tæplega getur um verið að kenna fávizku og ókunnugleik þm., heldur hlýtur þm. að vera ljóst, að hann fer hér með alrangt mál, hrein ósannindi, sem hann telur sennilega, að einhver muni trúa í bili, þar til hið sanna er leitt fram í dagsljósið. Ég var formaður síldarútvegsnefndar þetta haust og hafði verið frá stofnun n., og einnig var hæstv. fjmrh. eimmm. Mikill meiri hluti síldarinnar hafði verið seldur fyrir fram, og höfðu einstakir saltendur gert samninga við Svía og aðra, en þeir samningar síðan staðfestir af síldarútvegsnefnd, ef þeir uppfylltu sett skilyrði um verð og annað. Þegar stríðið skall á, taldi síldarútvegsnefnd, að nauðsynlegt mundi að freista þess að fá hækkaða þá síld, sem í landinu lá, og jafnframt voru gerðar ráðstafanir til þess að hækka verð á þeirri síld, er síðar kynni að veiðast — og ósamningsbundin var. En við rannsókn, sem n. lét fram fara, kom í ljós, að öll síld (önnur en matéssild) var seld með fyrirframsamningum af saltendum sjálfum. Eftir að þetta kom í ljós, voru m. a. af þessum ástæðum sett lög um útflutningsnefnd, þar sem bannaður var útflutningur á öllum vörum, sem þá voru liggjandi í landinu. Síldarsaltendur sjálfir vildu margir hverjir ekki rifta samningum og alls ekki standa að því sjálfir að hækka verðið. Og í skjalasafni síldarútvegsnefndar liggur skjal, undirritað af umboðsmönnum saltenda, þeim Ingvari Guðjónssyni, Steindóri Hjaltalín og Ingvari Vilhjálmssyni, þar sem þeir gefa síldarútvegsnefnd umboð til þess að semja við sænska síldarkaupendur um verðhækkun á allri samningsbundinni síld, kr. 4 sænskar pr. tunnu. En undanfari þess umboðs var einmitt það, að þeir vildu ekki sjálfir koma fram sem aðilar að þessum samningum, enda töldu sér það ekki fært, þar sem þeir höfðu sjálfir gert þá samninga, sem með þessari samningagerð voru ógildir. Þegar þessar staðreyndir eru athugaðar:
1. að saltendur höfðu sjálfir löngu fyrir fram gert bindandi samninga við sænska síldarkaupendur og aðra,
2. að öll síld, sem hér lá (önnur en matéssíld), er stríðið brauzt út, var seld fyrir fram með bindandi samningum og
3. að síldarútvegsnefnd samdi samkvæmt beiðni og umboði saltenda um verðhækkun á síld, sem þeir saltendur, en ekki síldarútvegsnefnd hafði selt fyrir fram, sést bezt, hvílíkt fleipur þm. fer með.
Hvernig áttu saltendur að geta knúð kaupendur til hækkunar á síld, sem fyrirframsamningar lágu fyrir um?
Hvernig átti síldarútvegsnefnd að grípa fram fyrir hendur þeirra, þegar þeir einir og sjálfir höfðu allan rétt haft til að selja og höfðu til að selja sína framleiðslu?
En einmitt umboð það, sem saltendur gáfu síldarútvegsnefnd, sýndi, að þeir vildu láta n. semja fyrir sig um þessa verðhækkun, m. a. vegna þess, að þeir vildu ógjarnan verða fyrir þeim óþægindum, sem af því leiddi að hækka verð á samningsbundinni vöru.
Mér er ekki kunnugt um, hvað þessi hv. þm. telur sér samboðið, en þó verður því ekki neitað, að þetta dæmalausa nál. virðist bera vott um, að hann hafi takmarkalausa trú á því að fara með ósannindi, fleipur og staðleysur máli sínu til framdráttar. Ég nenni ekki að hrekja einstaka önnur ósannindi og dylgjur, en Þess má þó geta, að þegar þm. talar um samfelldar stórveizlur fyrir Svía, fer hann eins og í öðru með alrangt mál. Síldarútvegsnefnd hafði venjulega einu sinni á vertíð (þó ekki alltaf) hóf fyrir þá umboðsmenn erlendra síldarkaupenda, er hér voru, og eru til skilríki því til sönnunar, en hvort þetta hefur breytzt, eftir að ég fór úr n. og þm. tók þar sæti, skal ég ekki segja, en kunnugt er, að þessi þm. hefur mesta dálæti á að halda stórveizlur á kostnað þess opinbera, þegar honum gefast minnsta tækifæri þar til. Ég skal svo láta útrætt um þessi atriði, en vil benda á, að síldarútvegsnefnd hefur jafnan talið traustast til góðs árangurs að hafa sem kurteisast samband við erlenda viðskiptamenn sína, en þó með fullri einurð. Enda mun það bezt til framhaldandi viðskipta, að sem vinsamlegast samband sé á milli þeirra aðila, sem íslenzkar afurðir selja, og hinna, sem þær kaupa.
Að lokum vil ég svo aðeins benda þm. á eitt lítið atriði í sambandi við kaup á stafefni, sem stjórn tunnuverksmiðjunnar hafði með að gera.
Tunnuverksmiðjustjórninni barst í hendur tilboð um finnskan staf frá Hauki nokkrum Björnssýni, sem er náinn samverkamaður þm., þó að hann hafi ef til vill ekki verið beinlínis útsendur af honum. Form. stjórnarinnar, Tryggvi Helgason, vildi óður og uppvægur kaupa þennan staf, en fyrir gætni núverandi form. síldarútvegsnefndar fékkst þó það skilyrði sett fyrir kaupunum, að stafurinn reyndist nothæfur. En — form., Tryggvi Helgason, vildi fyrir hvern mun — sjálfsagt í greiðaskyni við fyrrv. atvmrh. — láta kaupa þennan staf skilyrðislaust. Stafurinn var síðan skoðaður af Haraldi Loftssyni og reyndist, eins og við var að búast, algerlega ónothæfur til tunnugerðar. Sami maður, Haukur Björnsson, bauð gjarðajárn frá Englandi. Stjórn tunnuverksmiðjunnar samþykkti tilboðið og setti tryggingu fyrir greiðslu. Járnið kom aldrei, en verksmiðjan hefur haft mikinn kostnað vegna þess að opna rembours og auk þess greiða vexti af þessari upphæð.
Síðar meir upplýstist svo, að félagi Hauks Björnssonar í öllum þessum viðskiptum og tilboðum var Andreas Godtfredsen, sá er vísa varð úr landi vegna rógskrifa um íslenzka útgerðarmenn og sjómenn.
Það sýndi sig, að það hafði ekki verið nóg, að hæstv. þáverandi atvmrh. hafði haft Hauk Björnsson fyrir sendiherra í Finnlandi, heldur hafði hann annan sendiherra í sambandi við þann sendiherra, en sá maður var Andreas Godtfredsen, sem rekinn var úr landi, dæmdur fyrir landráð af þeim ástæðum, að hann spillti fyrir íslenzkum sjávarútvegi á stríðsárunum. (ÁkJ: Sýknaði hv. þm. hann ekki?) Hann var ekki sýknaður, hann var náðaður með því skilyrði, að hann væri útlægur úr landinu. Honum var vísað úr landi og gert að skilyrði, að hann kæmi hér aldrei framar. Ég fyrir mitt leyti taldi svo mikla landhreinsun að þessum manni að losna við hann úr landinu, að ég vann það til að láta hann sleppa við fangelsisvist með því skilyrði, að hann kæmi aldrei til landsins aftur. En hv. þm. Siglf. taldi sér og sínum flokki og væntanlega ríkisstj. sæma að taka þennan mann fyrir sendiherra, fyrir sinn eigin trúnaðarmann í útlöndum.
Ég get rakið meira af þessum tunnuviðskiptum. Eins og kunnugt er, þá er útflutningsbann á tunnum í Svíþjóð. Það má enginn flytja tunnur úr landi í Svíþjóð. Svíar telja sig ekki hafa meira af tunnum en þeir þurfa að nota sjálfir. Eitt af afrekum þessa hv. þm., meðan hann var atvmrh., var að gera samning við tunnuverksmiðju í Svíþjóð um kaup á efni í 94 þús. tunnur og borga efnið fyrir hverjar 5 þús. tunnur án tillits til þess, hvort nokkurt útflutningsleyfi væri fyrir tunnunum, en kaupandi skyldi legg ja til útflutningsleyfi. Ég veit ekki, hvað sú stétt, sem hv. þm. Siglf. á sínum tíma mundi vilja leggja niður við trog, muni segja, þegar fyrirskipaðar eru svona verzlunaraðferðir, að kaupa tunnur, sem útflutningsbann er á, með því skilyrði, að kaupandi sjálfur eigi að útvega útflutningsleyfi, en borga alltaf jafnóðum. Annars er það einhver vísasti vegurinn til að afla sér óvinsældar þar, sem lítið er til af vörutegund erlendis, að ríkisstj. kaupi upp vörutegundina, til að innlendir menn geti ekki haft hennar not.
Ég skal svo enn minnast á einn þátt í þessum afskiptum hv. þm. Siglf., sem sérstaklega snertir stofnun tunnuverksmiðjunnar. Hann hefur haldið fram í þessu nál., að ég hafi reynt í síldarútvegsnefnd í mörg ár alltaf að leggja hindranir í veg fyrir innlenda tunnugerð. Ég hef sýnt fram á með þeirri ræðu, sem ég hef haldið, að slíkt er gersamlega tilhæfulaust. Það er í rauninni ómögulegt annað en þessi hv. þm., sem hefur verið búsettur á Norðurlandi, á Siglufirði, í mörg ár, viti betur en þetta. En hann hefur talið, þegar hann lét prenta nál., að ekki væri hægt að koma leiðréttingum við þetta í útvarpið, vegna þess að hann skilaði sínu nál. daginn eftir, að meiri hl., skilaði sínu. Hann hefur treyst því, að þeir, sem heyrðu hans álit lesið í útvarpið, mundu trúa, að allt, sem hann hefði látið þar prenta, væri satt. Hv. þm. hefur verið að hæla sér af því, að hann hafi komið á Alþingi með sérstaka till. um, hvernig ætti að bæta úr tunnuvandræðunum og gera tunnusmíðina innlenda, hann hefði borið þetta mál fram gegn mótmælum ýmissa vondra manna, sem ekki vildu hafa atvinnu í landinu, og nú væri allt í góðu lagi og verksmiðjan mundi bráðum taka til starfa. Ég hef athugað nánar, hvernig þessi hugmynd hv. þm. um byggingu tunnuverksmiðju á Norðurlandi er undir komin, og vil ég þá rifja upp fundi, sem haldnir hafa verið í nýbyggingarráði og síldarútvegsnefnd um þetta efni.
Nýbyggingarráð átti tal við bæjarstjóra Akureyrar og hann mætti þar á fundi, og þar var lögð fram till., sem áður hafði verið samþ. í síldarútvegsnefnd þann 24. maí og er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta :
„Nefndin samþykkir að fara fram á það við ríkisstjórnina, að hún heimili síldarútvegsnefnd að gera samninga við tunnuverksmiðjurnar á Akureyri og Siglufirði um, að þær smíði í næstu 5 ár frá 1946 að telja tunnur til að salta síld, enda samþykki nefndin efni, smíði og verð í byrjun hvers árs fyrir sig. Skal þá sérstaklega haft fyrir augum, að tunnurnar séu að öllu leyti svo sambærilegar við aðfluttar tunnur til sömu nota, að fært þyki að festa kaup á þeim hverju sinni.“
Nýbyggingarráð tók þessa till. til athugunar og lét svo um mælt, að það mundi af sinni hálfu gera sér far um að fylgjast með frekari gangi þessa máls. Þar var um það að ræða, að síldarútvegsnefnd, nýbyggingarráð, bæjarstjórn Akureyrar og væntanlega bæjarstjórn Siglufjarðar settu upp fimm ára plan um smíði á síldartunnum.
Maður skyldi nú halda, að hv. þm. Siglf. hefði ekki verið mjög illa við, að búið væri að setja upp fimm ára plan um að smíða allar þær tunnur, sem þyrfti í fimm ár. En hverju halda hv. þm., að þáverandi hæstv. atvmrh. hafi svarað þessum tilmælum? Hann fær bréf frá síldarútvegsnefnd 28. maí, þar sem n. óskar eftir því, að henni verði veitt sú heimild, sem í till. greinir, heimild til að semja við tunnuverksmiðjurnar á Akureyri og Siglufirði um að smíða síldartunnur næstu fimm ár. Þessu bréfi hefur aldrei verið svarað. Síldarútvegsnefnd, sem sendi bréf 28. maí 1945 til þáverandi atvmrh., núverandi hv. þm. Siglf., fékk alls ekki svar við þessu bréfi sínu, en á bréfið er skrifað með blýanti með hendi hæstv. þáverandi ráðh.: „Tala við Erlend. Segja, að ráðherrann telji ekki nauðsynlegt.“ M. ö. o., það er aldrei sent skriflegt svar úr stjórnarráðinu, heldur skrifar hæstv. þáverandi atvmrh. á bréfið fyrirmæli til fulltrúa síns, Gunnlaugs Briems, að ekki sé nauðsynlegt að gera samning um fimm ára smíði á síldartunnum. Gunnlaugur Briem skrifar fyrir neðan: „Tilkynnt E. Þ.“ Honum er tilkynnt með símskeyti, að þetta sé ekki nauðsynlegt, en sem sagt hinir ábyrgu aðilar, síldarútvegsnefnd, bæjarstjórn Akureyrar og bæjarstjórn Siglufjarðar fá ekki að koma að þessari framkvæmd, ráðh. reynir heldur að gera það sjálfur. Hann hafði trúnaðarmenn úti í löndum, Hauk Björnsson og Andreas Godtfredsen, og fannst réttara að láta þá annast þessi mál en þá ábyrgu aðila fyrir norðan. En svo þegar málið er komið á þennan rekspöl, er það tekið upp á öðrum grundvelli; eins og menn vita, af hæstv. ráðh. Ábyrgu aðilarnir eru settir út úr spilinu, en hæstv. ráðh. tekur það upp sem sína hugmynd, þegar síldarútvegsnefnd og nýbyggingarráð eru búin að koma sér saman um till. í málinu. Ég veit ekki, hvað þetta er kallað af öðrum, en stundum er slíkt kallað málefnaþjófnaður. Niðurstaðan af þessu er sú, að það er starfandi tunnuverksmiðja með sérstökum framkvæmdastjóra. Nú höfum við lagt til, meiri hl. sjútvn., eftir till. hæstv., sjútvmrh., að þessi verksmiðja verði lögð niður og sá framkvæmdastjóri, sem hæstv. fyrrv. atvmrh. hafði ráðið, verði einnig látinn hætta störfum, en, þeir ábyrgu aðilar, sem voru komnir á rekspöl með þetta mál, áður en hæstv. ráðh. tók það úr höndum þeirra, verði látnir taka við starfinu. Ég skal ekkert segja ljótt um þann framkvæmdastjóra, sem hæstv. fyrrv. ráðh. hefur ráðið til þessa starfs. Mér þykir ákaflega líklegt, að hann sé ákaflega svipuðum hæfileikum búinn og Haukur Björnsson og Andreas Godtfredsen, a. m. k. er hann þeim hæfileika búinn að vera þægt verkfæri í hendi hv. þm. Siglf. (Forseti (GÞ) : Ég vil minna hv. þm. á, að það er fjarverandi maður, sem hann. er að tala um og kalla þægt verkfæri. Ég veit ekki, hvort það er þinglegt.) Ég vil upplýsa hæstv. forseta um, að þessi maður var framkvæmdastjóri í Kaupfélagi Siglfirðinga á þeim tíma, sem kommúnistar ætluðu að taka félagið með ofbeldi og lögleysu, en var hindrað með fógetaúrskurði.
Ég get í rauninni látið þessar upplýsingar nægja, en ég tel í rauninni alveg furðulegt, að hv. þm. Siglf., eins og hann stendur að vígi í þessu máli, skuli gefa tilefni til þessara umr. Og ég get bætt því við, að ég tel, að það séu ekki öll kurl komin til grafar í þessu máli, heldur eigi enn eftir að koma í ljós ýmislegt það, sem hefur farið þannig úr hendi, að enginn ráðh. mundi óska eftir því að vekja um það umr. En sá, sem hefur kosið sér það að taka málefni síldarútvegsins úr höndum síldarútvegsnefndar, bæjarstjórnar Akureyrar, bæjarstjórnar Siglufjarðar og nýbyggingarráðs og fela þau Hauki Björnssyni og Andreasi Godtfredsen, hlýtur að hafa málstað, sem hann má vera stoltur af.