28.04.1947
Efri deild: 122. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1618 í B-deild Alþingistíðinda. (2450)

179. mál, sýsluvegasjóðir

Eiríkur Einarsson:

Það liggur að vísu fyrir álit frá hv. samgmn. um þetta mál, sem miðað er við að samþykkja frv. eins og það liggur fyrir, en þrátt fyrir það kom fram í umr., að við nánari athugun hafa ákveðnir nm. viljað endurskoða afstöðu sína, og verður skotið á fundi um þetta.

Af þessum ástæðum óska ég, að málið verði tekið af dagskrá, en hins vegar vil ég óska þess, að ekki verði látið dragast lengi, þangað til það verður tekið á dagskrá á ný.