29.04.1947
Efri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1619 í B-deild Alþingistíðinda. (2453)
179. mál, sýsluvegasjóðir
Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :
Herra forseti. Þann 15. apríl s. l. afgreiddi samgmn. þessarar hv. d. þetta frv. frá sér og mælti með því við d., að það yrði samþ. óbreytt.
Við nánari athugun komst n. að þeirri niðurstöðu, að ástæða væri til þess að gera smávægilega breyt. á frv., og á fundi, sem n. hélt í gær, varð hún öll sammála um það að bera fram þær brtt. við frv., sem nú liggja fyrir á framhaldsáliti n. á þskj. 737. — Þetta frv. er flutt af hv. samgmn. Nd. í samráði við vegamálastjóra, og samkvæmt till. hans fól frv. upphaflega í sér, að sýslufélögunum væri heimilt að leggja á vegagjöld, sem næmu allt að 12 af fasteignamati lands og lóða og allt að 6 af fasteignamati húsa. Við meðferð málsins í Nd. var samkvæmt till. þriggja hv. þm. þar tekin upp í frv. breyt. á sýsluvegasjóðsl., sem samþ. var á Alþ. 1945, og þau l. þar með numin úr gildi, þar sem hámarkið var miðað við 10. Hámarkið var þannig fært niður í 10 úr 12, sem hafði verið í frv. upphaflega. Af þessu leiddi það, að ekkert nýmæli var orðið eftir í frv. annað en það ákvæði, að á móti því, sem sýslurnar kynnu að leggja fram yfir 10 af fasteignamati lands og lóða, skyldi ríkissjóður leggja fram þrefalt framlag. Þegar málum var þannig komið, þýddi þetta, að nýmæli frv. höfðu í raun og veru ekkert gildi, nema því aðeins, að um undantekningartilfelli væri að ræða, þar sem það væri ákveðið sem regla, að framlög skyldu yfirleitt ekki vera hærri en 10 á móti þreföldu framlagi ríkissjóðs, nema að fengnu sérstöku leyfi samgmrh. til þess að leggja á hærri gjöld. Þegar n. hafði gert sér þetta ljóst, virtust henni þessi nýmæli í frv. vera svo veigalítil og hafa svo lítil áhrif á gang þessa máls, að tæplega væri ástæða til að gera breyt. á eldri l. fyrir þetta eina atriði. Hins vegar var það álit n., að réttmætt væri, eins og fram kom í upphaflega frv., að gefa sýslufélögunum kost á að leggja á nokkru hærri vegaskatt en þeim hefði áður verið heimilt vegna þess, hversu þörf hinna ýmsu sýslufélaga væri mikil fyrir fé í þessu skyni, og enn fremur þar sem slíkur áhugi væri fyrir hendi heima í héraði, væri líka sanngjarnt, að ríkissjóður tæki þátt í þessu með stighækkandi gjöldum móti framlagi sveitarfélaganna.
Með tilliti til þessa varð samgmn. Ed. ásátt um að leggja fram þær brtt., sem nú liggja fyrir á þskj. 737. Fela þær það í sér — svo sem var í upphaflega frv. —, að sýslufélögin megi leggja vegaskatt allt að 12 af fasteignarmati lands og lóða og 6 af fasteignarmati húsa gegn þreföldu framlagi ríkissjóðs á móti því, sem sýslufélögin leggja umfram 10. Hin breyt. felur það í sér, að fellt er niður ákvæði um það, að ráðh. geti veitt sérstakt leyfi til þess að fara megi fram úr þessu tilsetta hámarki. N. lítur þannig á, að hafa beri þetta hámark rýmra en verið hefur, en þó það bindandi, að fjárveitingarvaldið væri í höndum Alþ. — eins og vera ber —, en taldi ekki rétt, að ráðh. eða einn maður hefði vald til þess að fara, svo sem honum sýndist, fram úr þessu hámarki, ef fram kæmi beiðni um það frá einhverjum sýslufélögum, og gæti hann þar með seilzt óeðlilega langt ofan í ríkissjóð og veitt einstökum sýslufélögum hlunnindi, hvað þetta snertir. Það kom sem sé fram í n., og ég held, að ekki sé hægt að neita því, að hægt væri að misnota þetta ákvæði, eins og það er nú í frv., þar sem ráðh. er veitt þessi heimild. Hins vegar er það vilji n., að þetta hámark, sem sýslufélögin séu bundin við, sé það rúmt, að telja megi, að þau geti vel við unað.
Ég vil því mælast til þess fyrir hönd samgmn. þessarar d., að hv. dm, samþykki þær till. hennar, sem hún flytur á þskj. 737.