03.02.1947
Neðri deild: 65. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1620 í B-deild Alþingistíðinda. (2462)

152. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Frsm. (Sigurður Kristjánsson) :

Herra forseti: Það er ástæða til að segja nokkur orð um þetta frv. og ástæðuna fyrir því. Það skal tekið fram, að sjútvn. Nd. flytur frv. að beiðni hæstv. atvmrh., og hefur hann tekið það að sér eftir beiðni stjórnar samábyrgðarinnar, sem samdi frv. Frv. er breyt. á gildandi l. frá 1909, og eru höfuðbreytingar tvær, í fyrsta lagi skal hækka stofnfé stofnunarinnar, og í öðru lagi skal hluttaka breytt og aukin á sama hátt og stofnféð. Samábyrgðin starfaði án stofnfjár, en tók lág iðgjöld og átti varla fyrir skuldum eftir 30 ár, og sjóðir söfnuðust ekki. Í stríðsbyrjun var stofnféð ½ millj. kr. og er það nú of lítið. Áhætta er lítil á þessum tímum, og engin hætta er á, að samábyrgðin tapi miklu, og ekki heldur, að hún græði mikið. En þessi aukning á stofnfénu svarar aðeins til hækkunar á dýrtíð, og bætist þar við, að samábyrgðin mun nú tryggja 100–200% meiri verðmæti en verið hefur sökum aukningar á skipastólnum. Um hitt atriðið, að breyta áhættunni, þá er ég því meðmæltur. Hefur verið reiknað út, hve mikil áhættan var, og var henni svo breytt í hundraðshluta í stað þess, að áður var hún fjárhæð. En hagkvæmara er fyrir samábyrgðina að miða við hundraðshluta, því að þá verður hún þeim mun minni sem skipin eru lélegri og öfugt. Ég vona, að hv. þm. greini ekki mikið á um þetta. Ef til vill þykir þetta baggi fyrir ríkið, en þetta er nauðsynlegt. Það er ekki þörf fyrir mig að hafa fleiri orð um þetta að sinni, en ég vildi mælast til, að málinu verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni. — Enn fremur vildi ég víkja því til hæstv. forseta, að hann hraði þessu máli og eins 5. dagskrármálinu, sem er frv. til l. um vátryggingarfélög fyrir fiskiskip, sökum nauðsynjar, að bæði þessi mál komist sem fyrst í gegnum þessa hv. d., því að beðið er með margar ráðstafanir. Er nauðsyn, að þessi tvö frv. fylgist að.