10.04.1947
Efri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (248)

220. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Pétur Magnússon:

Herra forseti. Það er misskilningur hjá hv. 4. landsk., að ég tali fyrir hönd ríkisstj. í þessu máli. heldur tala ég sem frsm. fjhn., og ætla ég ekki að rökræða við hv. 4. landsk., hvort stefna ríkisstj. í dýrtíðarmálunum sé heppileg eða ekki. Hv. þm. er kunnugt um, að ég er á annarri skoðun en þeirri, sem nú hefur orðið ofan á. Ég hef ekki trúað á niðurgreiðsluaðferðina, og hélt ég, að flestum hv. þm. væri það kunnugt. En ég vildi drepa stuttlega á nokkur af rökum hv. 4. landsk. gegn þessu frv. Ég verð að segja, að mér fannst hann mæla meira af vilja en mætti. Hann sagði, að samþykkt frv. mundi snerta mjög hag almennings, og telur að vörur þær, er um ræðir, séu daglegar neyzluvörur, en ef hann lítur yfir flokk neyzluvaranna, þá er þetta fjarri lagi. Þær vörur, sem erfiðast er að komast hjá að nota alls ekki. eru sumar súkkulaðivörur, sem eru notaðar aðeins örfáa daga á árinu, og svo ölföng, en ég vil segja, að ef heimili nota þessar vörur daglega, þá munu þau varla telja eftir sér hækkunina. Ég hygg, að fyrir þá, sem á annað borð horfa í nokkur fjárútlát, þá skipti þessi tollahækkun litlu máli, því að vörurnar, sem um ræðir, geta menn komizt hjá að nota. Þess vegna þykir mér undarlegt, að hv. 4. landsk. skuli nota svo sterk orð, því að mér hefur skilizt, að stefna hans flokks hafi verið að tolla ónauðsynlegar vörutegundir. Það er því síður en svo réttmætt hjá hv. þm., að þetta frv. bendi til þess, að byrjað sé á kerfisbundnum áætlunum um að lækka lífskjör almennings. Það lægi nær með það frv., sem er til umr. í Nd. nú, þar sem ætlazt er til, að tollur sé lagður á neyzluvörur. Þá gerði hv. 4. landsk. aths. við það, að ekki væri tekið fram um verzlunarálagningu á þessar vörur. Það er ekki tekið neitt fram um það, og tel ég, að það skipti ekki máli. Þegar verðlagsráð ákveður álagningu á vörur, gerir það sér grein fyrir, hvaða álagningu kaupmaðurinn þarf að fá til að geta dreift vörunni. Ef álagning er miðuð við prósent, þarf hún að vera hærri en ef hún er miðuð við heildarverð. Ef t.d. heildarverð er 8 kr. pr. kg., þá hlýtur hundraðshlutinn að vera lægri, ef miðað er við 8 kr. en ef miðað er við 6 kr. Þá maldaði hv. 4. landsk. í móinn og sagði, að hér væri um annað að ræða, en hækkun frá því fyrir stríð, er næmi verðlagsvísitölu. Hann vitnaði til tollskrár frá 1942 og sagði, að um allmikla verðhækkun hefði verið þá að ræða. En hvað um það, þá getur það ekki átt við þetta frv. Lögin um gjald af innlendum tollvörutegundum eru frá 30. des 1939, eða fyrir þann tíma, að teljandi verðhækkun varð. Þess vegna stenzt það, sem ég sagði, að sú hækkun, sem hér er gert ráð fyrir, er ekki meiri en sem svarar verðlagsvísitölunni. Þessi tollur er raunverulega ekki hærri en árið 1939, og það hygg ég, að hv. þm. treysti sér ekki til að halda fram, að geta manna til að greiða sé minni, en hún var árið 1939.

Hv. þm. spurði, hversu mikil vísitöluhækkun yrði af þessu frv. og þeim öðrum frv., er nú liggja fyrir. Ég veit ekki. hve hækkunin verður mikil, en af þessu frv. verður hún mjög lítil, því að hér er um þær vörur að ræða, sem fáar ganga inn á vísitölureikning, en af öllum frv., er fyrir liggja nú, mun vísitöluhækkunin nema sem næst 6 vísitölustigum. Það má segja, að það sé ekki svo óveruleg hækkun, og hagnaður ríkissjóðs rýrnar, ef halda á vísitölunni óbreyttri, en í sjálfu sér er ekki ástæða til að ræða það í sambandi við þetta frv., því að það hækkar ekki vísitöluna neitt að ráði. Það er svo ekki fleira hjá hv. 4. landsk., sem gefur tilefni til andsvara. En ég endurtek það, að þegar litið er til þarfa ríkissjóðs fyrir auknar tekjur, þá er erfitt að benda á eðlilegri leið en að færa tollinn til þess. sem hann var fyrir stríð og sem menn sætta sig við að greiða.