25.03.1947
Efri deild: 99. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1625 í B-deild Alþingistíðinda. (2487)

204. mál, brúargerðir

Frsm. (Eiríkur Einarsson) :

Herra forseti. Svo sem kunnugt er, varð samkomulag um það, að vegabótafrv. tvö, frv. til vega- og brúalaga, skyldu flytjast sitt í hvorri þd., og kom það í hlut Ed. að flytja þetta frv. til brúalaga. Um breyt. á brúalögunum, eins og á vegalögunum, er það að segja, að þær eru ráðgerðar af vegamálastjóra, sem undirbúið hefur frv. Það er ráðgert að fjölga brúnum allmikið, en allar þær brýr, sem gert er ráð fyrir, að teknar séu inn í l., eru í þann veginn að komast á þjóðvegi, eða þá að þeir vegir, sem þær tengja saman, eru í þann veginn að verða þjóðvegir. Það er allmikil aukning á brúm, sem fella á inn í brúakerfið, eða 33 víðs vegar um landið, en þó flestar í Vestfirðingafjórðungi, því að þar eru margar ár, sem nauðsynlegt er að brúa, en Vestfirðingafjórðungur hefur helzt farið varhluta undanfarið. Allir fjórðungar fá þó nokkuð og flestar sýslur.

Það er óþarfi að fylgja þessu frv. úr hlaði með langri ræðu, því að skilgreining vegamálastjóra, sem fylgir því, skýrir það nægilega. Frv. snýst að kalla ekki um annað en, hvaða brúm skuli bætt inn á brúalögin, og er í frv. farið eftir till. vegamálastjóra. Þó er að geta þess, að eftir að hann var búinn að kynna sér málin nánar, og enn fremur samvinnunefnd samgöngumála og samgmn. Ed., þá var bætt 2 brúm inn í frv. eftir sérstökum meðmælum vegamálastjóra. Þá tel ég rétt að geta þess, að í 1. gr. frv. er mikilsvert atriði, sem ég tel mig ekki geta gengið þegjandi fram hjá. En það er, þar sem segir, að brýr á sýsluvegum megi gera að öllu af ríkisfé. Mun hér vera miðað við, að brýrnar séu þó ekki minni en 10 metra langar, þótt ekki sé það beint tekið fram. Þetta er mikið hagræði, og mega menn fagna þessu, þar eð geta sýslufélaganna til brúargerða er næsta takmörkuð. Það gæti verið athugandi, hvort taka ætti skýrt fram, að ríkið kostaði ekki minni brýr en 10 metra á sýsluvegunum og þá, að það væri skylda ríkissjóðs að kosta að öllu þær, er stærri væru, eða að hafa ákvæði 1. gr. eins og þau eru nú; en þetta má athuga undir næstu umr. N. treystir því, að því kerfi, sem hér er lagt til, verði ekki raskað, ekki af því, að ekki sé alltaf álitamál, hvar brúa skuli, heldur af því, að hlutaðeigendur hafa lagt sig í líma til þess að koma þessu saman og gert sitt bezta. Í trausti þess, að frv. fái greiðan framgang, sé ég ekki ástæðu til þess að ræða það nánar, en óska, að því verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni, en sé ekki ástæðu ti1 að vísa því sérstaklega til n., þar sem það er flutt af samgmn., og hún er fús að taka það til nánari athugunar.