12.10.1946
Sameinað þing: 2. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (2513)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég skal aðeins geta þess, að ég fyrir mörgum dögum og oftar en einu sinni hef persónulega spurt hæstv. kirkjumrh. um skoðun hans í þessum efnum, en það fór þannig, að loks var ég neyddur til þess að bera þetta fram hér í opinberri fyrirspurn.