05.12.1946
Sameinað þing: 15. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1964 í B-deild Alþingistíðinda. (2515)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég hefði viljað bera fram fyrirspurn til hæstv. dómsmrh. út af því, sem hefur verið hér í blöðunum undanfarið.

Það hefur verið rætt undanfarið í blöðunum um vopnasmygl, og virðist sú fregn hafa komið frá Morgunblaðinu, og í blaði hæstv. dómsmrh. er verið að nota frásögnina um vopnasmyglið, að því er virðist í pólitískum tilgangi og bendla þetta við Sósfl. Ég vil leyfa mér að koma fram með þá fyrirspurn, hvort rannsókn hafi farið fram í þessu máli og hvað hefur verið gert. Það er undarlegt, að lögreglustjóri hefur talað um þetta við blað ráðh. og síðan er farið að rita um málið í leiðara pólitísks blaðs. En svo veit maður ekki til, að neitt hafi verið gert í málinu. Hvorki rannsóknarlögreglan né sakadómari vita neitt um þetta. Það er ekki brugðið við, eins og þegar sumar símahringingar eiga sér stað, hvað þá þegar skammbyssuskotin hvína í Hafnarfirði. Þetta þarf að upplýsa, og fyrst farið er að hagnýta svona sögur í pólitískum tilgangi, er nauðsynlegt að fá það upplýst, hvað yfirvöldin hafa gert í þessu.