05.12.1946
Sameinað þing: 15. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (2517)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir upplýsingarnar, en mér skilst á þeim, að rannsóknarlögreglunni hafi ekki verið fengið þetta mál til meðferðar, og enn fremur, að þetta vopnasmygl hefur átt sér stað fyrir nokkrum tíma síðan. En það væri gott að fá upplýsingar um, hvers vegna lögreglustjóra hafi fundizt ástæða til þess að skýra Morgunblaðinu frá þessu, en ekki ástæða til þess að afhenda rannsóknarlögreglunni málið. Síðan er farið að reyna að nota þessa fregn á mjög pólitískan hátt. Mér finnst það mjög undarleg aðferð hjá lögreglustjóra, að á þeim tíma, sem hann ætti að vera að rannsaka þetta mál, skuli hann upplýsa eitt pólitískt blað um það, enda þótt hann ef til vill teldi það heppilegt augnablik til þess, en gefur rannsóknarlögreglunni engar upplýsingar eða fyrirskipanir um það.
Ég vil svo leyfa mér að óska þess, að skýrsla sú, sem hæstv. ráðh. talaði um, verði birt, þegar hún kemur.