05.12.1946
Sameinað þing: 15. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (2518)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Mér er það jafn mikill leyndardómur eins og hv. 2. þm. Reykv., af hverju lögreglustjóranum í Reykjavík hefur fundizt þessi tími heppilegur til þess að skýra frá málinu. Mér er slíkt alls ekki kunnugt. Það er honum einum kunnugt eða þá einhverjum, sem honum fannst ástæða til að taka tillit til eða hefur staðið að því, að það væri gert. Ég skal ekkert um það segja. En þetta mál kom fyrst fyrir mín augu, er ég las það í Morgunblaðinu um helgina. Ég man ekki, hvern daginn það var.