05.12.1946
Sameinað þing: 15. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Það var aðeins út af ræðu hv. þm. Str., sem ég vildi segja nokkur orð. Mér virðist, að aðgerðir í þessu máli hljóti að vera tvíþættar. Annars vegar þær að reyna að komast fyrir, hvernig sá innflutningur hefur átt sér stað, sem þegar er orðinn, og í öðru lagi að hindra, að frekari innflutningur eigi sér stað, og það virðist þá liggja beinast fyrir að hindra frekari innflutning með strangara tolleftirliti. Hins vegar ef hv. þm. Str. gæti bent á einhverjar öruggari leiðir til þess að hindra þennan innflutning, væri æskilegt, að hann skýrði frá því, en ég skil ekki, hvers vegna hann telur vafa á því, að tolleftirlitið komi að miklu liði.
Þá vík ég að hinu, hvernig á því stæði, að ekki hefði verið farið strax út í opinbera rannsókn, en það er ekki hægt að gera það að svo stöddu eða ekki fyrr en ég hef fengið tækifæri til þess að fá skýrslu frá lögreglustjóranum.
Annars var eitt, sem mér kom spánskt fyrir í ræðu hv. þm. Str., að hann skyldi halda fram, að lögreglustjórinn hefði ekki gefið þessar upplýsingar, sem komu í Morgunblaðinu. Frá skrifstofustjóra í utanrrn. hefur mér verið tjáð, að lögreglustjórinn í Reykjavík hafi gefið Morgunblaðinu þessar upplýsingar.