10.04.1947
Efri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (253)

220. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Herra forseti. — Þetta frv. er eitt hinna þriggja frv., sem ríkisstj. hefur borið fram til þess að fá tekjur til að mæta útgjöldum ríkissjóðs. Það er ekki ánægjuefni fyrir nýja ríkisstj. að þurfa að bera fram frv. til hækkunar tollum og mundi hún í lengstu lög hafa sneitt hjá því. En það er staðreynd, að halli verður á fjárlögum, ef ekki verða gerðar ráðstafanir til hækkunar tekna ríkissjóðs. Fyrir þessu hefur ríkisstj. haft opin augu og borið fram frv. til tekna.

Hv. 4. landsk. hefur snúizt gegn þessu frv. ríkisstj. í þessum tilgangi. en það, sem á skortir hjá hv. þm., um leið og hann snýst í móti þessum tekjuöflunarleiðum, er, að hann segi til, hvaða leiðir hann vill fara í þessum efnum, og bendi á aðrar leiðir til tekjuöflunar. En hv. þm. hliðrar sér hjá því, og er nú ekki úr vegi að gera sér grein fyrir því, hvaða leiðir helztar eru í þessu efni, og heyra eitthvað frá hv. 4. landsk. um þetta.

Eins og málið liggur fyrir mér. er hér um þrjár leiðir að velja:

1. Niðurskurð á útgjöldum ríkisins.

2. Tekjuöflun með hækkun skatta á almenningi.

3. Leiðina, sem ríkisstj. hefur valið.

Frá mínu sjónarmiði er naumast um aðrar en þessar þrjár leiðir að ræða, en ef hv. 4. landsk. sér einhverjar aðrar leiðir, væri rétt, að hann benti á þær.

Mér finnst nú rétt að víkja nánar að þessum þremur leiðum, sem ég hef hér minnzt á. Ég býst fastlega við, að hv. þm. og flokkur hans hafi ekki viljað fara fyrstu leiðina, niðurskurðarleiðina. Afstaða hans og flokks hans hefur verið sú að við því er ekki að búast, að frá honum og hans flokki komi mikil sparnaðarviðleitni varðandi útgjöld á fjárl. Ég býst ekki við, að hv. þm. taki undir það. ef farið væri fram á, að Alþ. lækkaði t.d. útgjöld til verklegra framkvæmda. Ég býst ekki við, að hv. þm. tæki undir það að lækka útgjöld til vega, hafnargerða, brúargerða og þess háttar, sem kannske er varla von. Ég býst ekki við, að hv. þm. hefði tekið undir það, ef farið hefði verið fram á það hér á Alþ. að draga eitthvað úr þeim stórkostlegu útgjöldum, sem lögð hafa verið á ríkissjóð, t.d. í sambandi við skólafrv. þau, sem þm. bar fram á s.l. þingi. og yfirleitt þá sé nokkurn veginn sama, hvar drepið er niður til sparnaðar á fjárl., þá sé ekki að búast við neinni undantekningu frá sósíalistum í þessu efni. Hvað snertir aðra leiðina, hækkun skatta á almenningi, held ég megi sama segja. Skattar eru orðnir svo háir, að skattþegnarnir eiga fullt í fangi með að greiða þá. Og mér er nær að halda, að sú skattabyrði, sem á almenningi hvílir, hafi orðið til þess að auka þann undandrátt. sem átt hefur sér stað í landinu varðandi skattaframtöl manna, a.m.k. verður ekki sagt, að hv. 4. landsk. og hans flokkur hafi ymprað á því með einu orði, að farin skyldi þessi leið. Þá er ekki eftir nema ein leið til að afla tekna í ríkissjóðinn, og á þá leið hefur ríkisstj. bent. Ég get ekki komið auga á aðra leið. Ég skora á hv. 4. landsk., fyrst hann beitir sér gegn þessum tekjuöflunarfrv., sem hér eru á ferðinni, að benda á leiðir til tekjuöflunar, er nægi til þess að afla ríkissjóði þeirra tekna, sem skortir nú, til þess að hann geti staðið undir útgjöldunum. það má ekki ætlast til minna af hv. þm, en hann verði við þessum tilmælum og láti hér ekki sitja við það eitt að segja nei og beita sér á móti þeim leiðum, sem á hefur verið bent. Um þetta frv., er hér liggur fyrir, verð ég að segja það, að mér finnst það sjálfsagðast af öllum þeim frv., er hér hafa verið flutt af hæstv. ríkisstj. Sú framleiðsla, sem hér á að fara að auka toll á, er þess eðlis, að almenningur getur neitað sér um hana sér að skaðlausu, ef hann vill. Hér er ekki um neinar lífsnauðsynjar að ræða, sem almenningur þarf á að halda. Mér finnst það því hljóma sem öfugmæli, þegar hv. 4. landsk. talar um, að með frv. þessu sé verið að gera árás á lífskjör almennings í landinu. Mér finnst það undarleg árás. þar sem hér er verið að hækka toll á spýtubrjóstsykri, negrakossum og öðru slíku. Mér finnst þetta undarleg árás á lífsafkomu almennings. Enda býst ég við, að hv. 4. landsk. hafi ekki meint það alvarlega, sem hann sagði um þetta frv., heldur hafi tilgangurinn verið að vera á móti málinu vegna þess. að það kom frá hæstv. ríkisstj., og vegna þess, að hann virðist ekki hafa sérstaklega mikinn áhuga á því að ríkisstj. takist að afla tekna móti útgjöldum þeim. sem búið er að leggja á ríkissjóðinn. Þá virtist hv. 4. landsk. boða í ræðu sinni allróttækar aðgerðir af hálfu hins vinnandi fólks í landinu. ef frv. ríkisstj. yrðu samþ. Með flutningi þessara frv., sagði hann, hefði ríkisstj. kastað hanzkanum framan í hið vinnandi fólk, og væri því ekki um annað að gera fyrir verkalýðinn, en hefjast handa um kröfu um stórfelldar kauphækkanir. Ég held þetta sé ofmælt hjá hv. þm. og hafi ekki við rök að styðjast, eins og hann setti það fram. En ég vil leyfa mér í þessu sambandi að benda á, að ef það er rétt, að frv. hæstv. ríkisstj. um hækkun á tekjum ríkissjóðs séu árás á vinnandi fólk í landinu, og ef það að krefja þjóðina um hækkuð gjöld til ríkissjóðs er árás á vinnandi fólk í landinu, þá hlýtur einnig sá verknaður, sem orðið hefur þess valdandi, að ríkisstj. gerir þessar kröfur, að vera árás á vinnandi fólk í landinu. Og þá hljóta þeir, sem þátt hafa tekið í því að binda ríkissjóði bagga, sem hér eru á ferðinni, þá hljóta þeir að hafa kastað hanzkanum framan í alþýðuna og hafið þessa árás. En hvernig er svo afstaða hv. 4. landsk. og flokks hans til þessa máls? Hefur hann hvatt til sparnaðar, þegar fjárl. eru á ferðinni? Mér er ekki kunnugt um það. Ég veit ekki betur, en þessi flokkur hafi fylgt hverri einustu hækkunartill., sem á ferðinni hefur verið í sambandi við fjárl., og gott betur, hann hefur líka borið fram heilan sand af hækkunartill., sem talið er að muni nema um 20 millj. kr. umfram það, sem á fjárl. er. Ef þessar till, hefðu verið samþ., hefði ríkisstj. orðið að afla mun meiri tekna. En það tókst að afstýra því, að till. þessar næðu fram að ganga. Það tókst sem sé að afstýra því, að Sósfl. fengi að gera þessa árás á alþýðu landsins samkv. orðum þessa hv. þm. Ég get ekki skilið þessar aðgerðir flokksins á annan hátt. Ég vil leyfa mér að gefnu tilefni frá hv. 4. landsk. að skora á hann að gefa okkur hér í þessari hv. d. upplýsingar um, hvaða leiðir hann vill fara í því að afla ríkissjóði nægra tekna til að standast núverandi áætluð útgjöld. Og einnig vil ég spyrja hv. þm., hvaða leið hann vill fara til að afla þeirra 20 millj., sem hann vill einnig leggja á ríkissjóð. Sú skylda hvílir á hv. þm. að skýra frá þessu. um leið og hann berst á móti tekjuöflunarleiðum þeim, sem hæstv. ríkisstj. vill fara. Ég vil endurtaka það, sem ég sagði áðan, að mér finnst tekjuöflunarleiðir þær, er ríkisstj. hefur horfið inn á, þær einu, sem færar eru, eins og sakir standa. Og af þeim þrem frv., sem hér liggja fyrir nú, þá finnst mér það, er hér er til meðferðar, sjálfsagðast.